Viðskipti innlent

Áfram fjör á fasteignamarkaðinum

Veltan á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að aukast. Í síðustu viku var þinglýst 116 kaupsamningum eða 14 fleiri en nemur meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Af þessum 116 samningum voru 86 um eignir í fjölbýli, 29 samningar um sérbýli og einn samningum um annars konar eign.

Veltan nam tæplega 3,4 miljörðum kr. sem er um 300 milljónum kr. meiri velta en nemur meðaltalinu á viku undanfarna þrjá mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×