Matur

Helgarmaturinn - Ískaffi að hætti Þorbjargar Hafsteins

Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, næringaþerapisti og hjúkrunarfræðingur

Ískaffi fyrir 2



12 ísmolar

4 tsk. skyndikaffiduft

2 dl sojamjólk eða hrísmjólk

2 dl heslihnetumjólk (jafnvel heimatilbúin)

2 hnífsoddar vanilluduft

2 tsk. xylitol eða stevía (lífrænt sætuefni)

Láttu ganga í smá stund í blandaranum.

Smá trikk

Settu 2 tsk. af heslihnetusmjöri út í ef þú vilt fá meira hnetubragð. Í staðinn fyrir heslihnetu­mjólk er hægt að nota hrísmjólk með möndlum eða vanillubragði.

Fróðleiksmoli

Ískaffið er góður drykkur á heitum sumardegi. Njóttu hans meðan hann er ískaldur. Þú getur líka sleppt ísmolunum eða einfaldlega hitað hann upp. Þá ertu með heitan kaffi latte, sem er auðvitað það besta á veturna þegar maður kemur inn úr snjónum og kuldanum.

Verði þér að góðu!

Sjá nánar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×