Mjög ánægjuleg tíðindi fyrir samkeppnishæfni Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 19. júní 2012 22:00
Stóriðjuframkvæmdir fyrir yfir eitthundrað milljarða króna eru í farvatninu í Þingeyjarsýslum, við tvö kísilver og tvær virkjanir. Landsvirkjunarmenn segja þetta ánægjuleg tíðindi sem staðfesti samkeppnishæfni Íslands. Tvö fyrirtæki, Thorsil og PCC, stefna nú bæði að því að hefja smíði kísilverksmiðju við Húsavík á næsta ári. Landsvirkjun staðfestir að þetta séu líklegustu verkefnin. Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, segir bæði þessi verkefni langt komin. „Og menn hafa verið að stíga mjög ákveðin skref í að þróa þau áfram þannig að það er margt sem bendir til þess að við munum sjá kísilmálmverksmiðju rísa á Norðausturlandi á næstu árum," segir Magnús. Til að mæta orkuþörfinni áformar Landsvirkjun nýjar jarðgufuvirkjanir í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum og Landsnet þarf að leggja háspennulínur þaðan til Húsavíkur. En ræður Landsvirkjun við að fá tvær verksmiðjur á Bakka sem orkukaupendur á sama tíma? Magnús segir að ekki væri óeðlilegt þótt einhver misseri myndu líða á milli en kveðst ekki geta sagt um hve margir mánuðir það væru. „En það þyrfti ekki að vera mjög langur tími vegna þess að þessir aðilar eru ekki að taka það mikla orku." Spurður um hvenær Landsvirkjun gæti byrjað að afhenda þeim orku svarar Magnús að fyrirtækið stefni að því að vera tilbúið með orkuna í árslok 2015. Fjárfesting á næstu árum í þessum tveimur verksmiðjum færi yfir fimmtíu milljarða króna og annað eins kostaði að byggja upp orkumannvirki. Magnús tekur skýrt fram að engir orkusamningar séu í höfn en engu að síður sjái menn markverð skilaboð. „Hlutirnir eru að hreyfast í rétta átt og þetta eru mjög ánægjuleg tíðindi fyrir okkur hjá Landsvirkjun, - mjög ánægjuleg tíðindi fyrir okkur hér á Íslandi, - vegna þess að á sama tíma eru efnahagsmál heimsins í miklu uppnámi. Þetta er staðfesting á samkeppnishæfni okkar og samkeppnishæfni Íslands. Mjög ánægjulegt," segir Magnús.
Mest lesið Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Viðskipti innlent Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Viðskipti innlent Shein ginni neytendur til skyndikaupa Viðskipti innlent Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Sjá meira