Ábyrgur vegna skuldar - ekki kynnt greiðslumat BBI skrifar 1. júní 2012 21:38 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst í dag að þeirri niðurstöðu að fasteignarveðsetning ábyrgðarmanns vegna skuldar fyrrverandi tengdarsonar síns væri ekki ógild þrátt fyrir að ábyrgðarmanninum hefði ekki verið kynnt greiðslumat á skuldara. Óumdeilt er að greiðslumat fór fram og reyndist jákvætt, þ.e. skuldarinn var talinn geta staðið undir sínum skuldbindingum. Hins vegar var ábyrgðarmanninum ekki kynnt niðurstaða greiðslumatsins og hann skrifaði undir skuldabréf tengdarsonar síns sem ábyrgðarmaður án þess að hafa kynnt sér matið. Þrátt fyrir þennan skort á upplýsingum komst dósmtóllinn að þeirri niðurstöðu að ábyrgðarmanninum bæri að standa við sína skuldbindingu, þ.e. veðið í fasteigninni væri gilt. Árið 2001 gerðu fjármálafyrirtæki með sér samkomulag til verndar ábyrgðarmönnum skulda. Samkomulagið hafði ekki lagagildi, en þar skuldbundu fyrirtækin sig til að láta fara fram greiðslumat á skuldurum og kynna væntanlegum ábyrgðarmönnum niðurstöðu matsins. Sérstaka staðfestingu ábyrgðarmanns þurfti til ef matið reyndist neikvætt. Almennt bar þó bankanum að gefa ábyrgðarmönnum kost á að kynna sér það jafnvel þó það væri jákvætt. „Niðurstöðuna í dag má túlka þannig að það voru töluvert miklar skyldur lagðar á ábyrgðarmanninn til að kynna sér greiðslumatið og hafa uppi athugasemdir nánast strax," segir Árni Helgason, lögmaður ábyrgðarmannsins og vill meina að samkomulag fjármálafyrirtækjanna nái ekki því markmiði sínu að vernda ábyrgðarmenn ef þeir þurfa sjálfir að afla sér allra fyrirliggjandi upplýsinga um skuldarann og kynna sér reglur um ábyrgðarmenn. „Við eigum eftir að taka ákvörðun um hvort málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar," sagði Árni.
Mest lesið Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Viðskipti innlent Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Viðskipti innlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Apple fær nýjan forstjóra Viðskipti erlent Fleiri fréttir Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Sjá meira