Virði Regins 10,5 til 15,5 milljarðar við útboð 8. júní 2012 15:08
Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allt að 75% hlutafjár í fasteignafélaginu Reginn hf. í hlutafjárútboði sem fer fram dagana 18. og 19. júní 2012. Stefnt er að skráningu Regins á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphallar Íslands) í kjölfar útboðsins. Megin markmið Landsbankans með útboðinu er að Reginn uppfylli skilyrði Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár og að almenningur jafnt og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum. Verðbil í útboðinu hefur verið ákveðið og verður það 8,1 – 11,9 krónur á hlut. Þetta samsvarar því að markaðsverðmæti alls hlutafjár Regins sé á bilinu 10,5 – 15,5 milljarðar króna. Þetta er lækkun frá því sem áður hafði verið kynnt, en þá var markaðsverðmæti alls hlutafjár á bilinu 14,2 – 18,3 milljarðar króna. Fréttatilkynning Landsbankans vegna framangreinds er hér að neðan í heild sinni. „Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allt að 75% hlutafjár í fasteignafélaginu Reginn hf. í hlutafjárútboði sem fer fram dagana 18. og 19. júní 2012. Stefnt er að skráningu Regins á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland hf. (Kauphallar Íslands) í kjölfar útboðsins. Megin markmið Landsbankans með útboðinu er að Reginn uppfylli skilyrði Kauphallarinnar um dreifingu hlutafjár og að almenningur jafnt og fagfjárfestar eignist hlut í félaginu. Verðbil í útboðinu hefur verið ákveðið og verður það 8,1 – 11,9 krónur á hlut. Þetta samsvarar því að markaðsverðmæti alls hlutafjár Regins sé á bilinu 10,5 – 15,5 milljarðar króna. Þetta er lækkun frá því sem áður hefur verið kynnt, en þá var markaðsverðmæti alls hlutafjár á bilinu 14,2 – 18,3 milljarðar króna. Lækkunin er ákveðin til að tryggja farsæla skráningu Regins hf. og stuðla að þátttöku almennings og fjárfesta í uppbyggingu íslensks hlutabréfamarkaðar.Landsbankinn áfram hluthafi í Regin hf. Landsbankinn hefur einnig ákveðið að halda eftir 25% eignarhlut í Regin og skuldbindur sig til þess að selja þann eignarhlut ekki í 10 mánuði eftir skráningu í Kauphöll. Með því vill bankinn undirstrika að hann hefur mikla trú á félaginu og framtíð þess.Fyrirkomulag útboðsins Útboðið er tvískipt og býður Landsbankinn til sölu 975.000.000 hluti eða sem nemur 75% af útgefnum hlutum í Regin hf.:Í tilboðsbók, þar sem kauptilboð skal vera að lágmarki 50 milljónir króna, eru til sölu 633.750.000 hlutir eða 48,75% af heildarhlutafé.Í áskriftarhluta er tekið við kauptilboðum sem numið geta á bilinu 100.000 – 49.999.999 krónur. Í þeim hluta eru til sölu 341.250.000 hlutir eða 26,25% af heildarhlutafé Regins. Útboðið hefst kl. 10:00 þann 18. júní 2012 og lýkur kl. 16:00 þann 19. júní 2012. Ekki er tekið við áskriftum utan þessa tímabils.* Útboðið er markaðssett á Íslandi og skilyrði fyrir þátttöku í útboðinu er að kaupendur hafi íslenska kennitölu og séu fjárráða. Landsbankinn mun falla frá útboðinu ef eftirspurn í útboðinu verður ekki nægjanleg til að ná megin markmiði útboðsins varðandi dreifingu hlutafjár eða ef ekki næst að selja yfir 50% af heildarhlutafé félagsins. Lýsing verður birt þann 11. júní 2012 á vef Regins, www.reginn.is og á vef Landsbankans, www.landsbankinn.is. Prentuð eintök af lýsingunni má nálgast í höfuðstöðvum Regins að Hagasmára 1, 201 Kópavogi."
Mest lesið Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komu megin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira