Viðskipti innlent

Tekjur landsmanna lækkað um 30%

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Tekjur landsmanna hafa lækkað um hátt í þriðjung á fimm árum en tekjurýrnunin er mismunandi eftir hópum.

Tekjur landsmanna hafa lækkað um tæplega 31 % frá árinu 2007. Þetta kemur fram í grein Páls Kolbeins rekstrarhagfræðings í Tíund. Helmingur var með minna en tæplega 3,7 milljónir í tekjur árið 2010 og höfðu tekjumörk þeirra lækkað um tæp 20% frá árinu 2007. Þá var fjórðungur framteljenda með meira en sjö milljónir í tekjur árið 2010. Þeir allra tekjuhæstu, eða eitt prósent landsmanna, var með meira en tæplega 22 og hálfa milljón í tekjur það árið en tekjumörk þeirra lækkuðu um tæplega 46% frá árinu 2007.

Tekjur tekjuhæstu framteljendanna hafa lækkað meira en tekjur hinna og því hefur tekjumunur minnkað.

Tekjuhæsti tuttugasti hluti framteljenda var með meira en 280% hærri tekjur en þær fjölskyldur sem voru um miðja tekjuröðunina og tekjuhæsta eitt prósent framteljenda var með meira en 510% hærri tekjur en miðgildi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×