Viðskipti innlent

Þjónustujöfnuður óhagstæður um 5 milljarða

Þjónustujöfnuður við útlönd var óhagstæður um 5,1 milljarð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs að því er fram kemur í tölum Hagstofunnar. Þar segir að útflutningur á á þjónustu hafi verið 64,5 milljarðar en innflutningur 69,6 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi var því neikvæður um 5,1 milljarð króna.

„Samgöngur er stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 10,1 milljarður. Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu um 8,8 milljarðar. Halli á ferðaþjónustu var um 6,3 milljarðar," segir á vef Hagstofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×