Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára Magnús Halldórsson skrifar 22. maí 2012 10:07 Sjávarútvegur er nú sem fyrr, undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar.
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,6 milljarða eða 28,1% á milli ára, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands í dag. Aflaverðmæti botnfisks var 17 milljarðar og jókst um 28,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam 13,2 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 9,8 milljarðar og jókst um 26% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 2,8 milljörðum og jókst um 48,4% en verðmæti karfaaflans nam 2,5 milljörðum, sem er 44% aukning frá fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011. Verðmæti ufsaaflans jókst um 47,8% milli ára og nam 1 milljarði króna í janúar til febrúar 2012, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Verðmæti uppsjávarafla nam um 11 milljörðum króna í janúar til febrúar 2012, sem er um 29,6% aukning frá fyrra ári. „Sú aukning skýrist að mestu af loðnuafla að verðmæti 10,8 milljarðar króna samanborið við 7,3 milljarða á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2011. Aflaverðmæti flatfisksafla nam um 1,9 milljörðum króna, sem er 17,7% aukning frá janúar til febrúar 2011,“ segir á vefsíðu Hagstofu Íslands. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam 18,7 milljörðum króna og jókst um 29,5% miðað við fyrstu tvo mánuði ársins 2011. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 16,7% milli ára og var ríflega 3,7 milljarðar króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam tæpum 6,5 milljörðum í janúar til febrúar og jókst um 34,3% milli ára en verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam rúmum 1 milljarði króna, sem er 33,8% aukning frá árinu 2011.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira