Viðskipti innlent

Sigurjón Sighvatsson vill milljarð frá Glitni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigurjón Sighvatsson tapaði milljarði á fjárfestingu í dönsku fasteignafélagi.
Sigurjón Sighvatsson tapaði milljarði á fjárfestingu í dönsku fasteignafélagi.
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur stefnt þrotabúi Glitnis vegna viðskipta við bankann í tengslum við kaup á dönsku fasteignafélagi.

Um er að ræða skaðabótamál vegna viðskiptanna, en Glitnir var einn af lánveitendum Sigurjóns í verkefninu. Sigurjón tapaði um einum milljarði króna á þessari fjárfestingu og krefur Glitni um samsvarandi upphæð vegna þess taps.

Samkvæmt upplýsingum Vísis byggir krafan á því að Glitnir hafi meðal annars brotið lög um fjármálafyrirtæki í tengslum við þessi viðskipti á margvíslegan hátt. Mál Sigurjóns gegn bankanum verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og mun Vísir greina frekar frá málinu þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×