Viðskipti innlent

Ljósmyndara vísað á dyr á aðalfundi Bakkavarar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir stofnuðu Bakkavör.
Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir stofnuðu Bakkavör.
Ágúst Guðmundsson, sem kenndur er við Bakkavör, ákvað upp á sitt einsdæmi að vísa Gunnari Andréssyni ljósmyndara Fréttablaðsins á dyr þegar hann mætti á aðalfund félagsins sem hófst á Hótel Sögu í morgun. Hann gaf engar skýringar aðrar en þær að fundurinn væri lokaður. Ágúst meinaði ljósmyndaranum líka að taka myndir fyrir utan fundarsalinn. Bakkavör var stofnað af bræðrunum Ágústi og Lýði Guðmundssyni. Fyrirtækið er nú nánast að öllu leyti undir stjórn lífeyrissjóða og banka. Helstu kröfuhafarnir eru Arion banki, skilanefnd Glitnis, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Gildi lífeyrissjóður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×