Viðskipti innlent

Landsbankinn selur hlut sinn í Hampiðjunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Landsbankinn hf. hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni hf. eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Markaðsviðskipti Landsbankans munu annast sölu hlutanna í opnu útboði byggt á undanþáguheimild frá útgáfu lýsingar í samræmi lög um verðbréfaviðskipti.

Í tilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að lágmarkshlutur hvers tilboðs skuli vera 10.000.000 hlutir að nafnverði og lágmarksgengi miðast við 8,00 krónur á hlut. Byrjað var að taka á móti tilboðum klukkan tíu í morgun en tilboðsfrestur rennur út mánudaginn 4. júní 2012 klukkan fjögur.

Niðurstöður útboðsins verða birtar í Kauphöll að útboði loknu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×