Óvíst að fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar sé raunhæf Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. maí 2012 15:04 Fjárfestingaáætlunin kynnt í síðustu viku. mynd/ gva.
Greining Arion banka segir óvíst að fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2013-2015 sé raunhæf. Í Markaðspunktum sínum í dag bendir Greining á að áætlunin eigi ekki að ganga á ríkisfjármálin heldur styðja við þau en gert sé ráð fyrir að fjárfestingar í áætluninni séu fjármagnaðar annars vegar með yfirvofandi hækkun veiðigjalds og hins vegar með arði og sölu eigna ríkisins. „Þar sem fjármögnun fjárfestingaáætlunarinnar er ekki í hendi telur greiningardeild óvíst að um raunsæja áætlun sé að ræða, a.m.k. ef tekið er mið af tímaramma verkefnisins en stefnt er að því að hefja fyrstu framkvæmdir strax á næsta ári. Óvíst er hver afraksturinn gæti orðið af sölu á hlut ríkisins í bönkunum m.a. vegna gjaldeyrshafta, óvissu um framtíðarskipan fjármálakerfisins og kvótakerfisins og óvissu um gengislán, svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur ósætti um veiðigjaldið óhjákvæmilega áhrif á fjármögnun áætlunarinnar," segir Greining Arion banka. Þá segir Greining að hafa beri í huga að ríkið hafi tekið lán fyrir eignarhlutum í bönkunum sem þýði að ef andvirði hlutanna sé ráðstafað í ofangreindar aðgerðir muni nettó skuldastaða ríkissjóðs bókhaldslega versna.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira