Innlent

Þóra opnar kosningamiðstöð

Þóra Arnórsdóttir.
Þóra Arnórsdóttir.
Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi opnar formlega kosningamiðstöð sína síðdegis. Kosningamiðstöðin er í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg. Á vef framboðsins segir að Þóra muni flytja ávarp og spjalla við gesti og gangandi.

Þar kemur einnig fram að fylgi Þóru hafi dalað nokkuð samkvæmt nýjustu könnun Fréttablaðsins og því þurfi að spýta í lófana, en fimm vikur eru til kosninga.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×