Stjórn CCP vill fá heimild til lántöku upp á 2,5 milljarða Magnús Halldórsson skrifar 29. maí 2012 10:50 Úr leiknum DUST 514, sem er fyrstu persónuskotleikur. Gengi leiksins mun ráða miklu um framgang CCP á næstu árum.
Fyrir aðalfundi tölvuleikjaframleiðandans CCP liggur fyrir tillaga stjórnar félagsins um að það hafi heimild til „að taka skuldabréfalán allt að fjárhæð USD 20.000.000 til allt að fimm ára með breytirétti í hlutabréf á tilteknum kjörum og uppgreiðslurétti," eins og orðrétt segir í blaðaauglýsingu stjórnar CCP vegna aðalfundarins. Upphæðin jafngildir um 2,5 milljörðum króna. Í auglýsingunni segir enn fremur að kjör breytiréttarins séu nánar skilgreind í skilmálum skuldabréfanna og liggja ítarupplýsingar um skilmálana frammi á skrifstofu félagsins, að því er segir í auglýsingunni. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, sagðist í samtali við fréttastofu í morgun ekki getað úttalað sig um rekstrartölur eða framtíðaráform félagsins, fyrr en kynning á þeim þáttum hefði farið fram á aðalfundinum 12. júní nk. Hilmar sagði þó að það sem auglýst hefði verið, meðal annars möguleiki á fyrrnefndri lántöku, væri frekari undirbygging fyrirtækisins vegna útgáfu DUST 514, nýjum leik á vegum CCP, en Hilmar Veigar segir fyrirtækið hafa fengið góðar viðtökur við leiknum þegar hann hefur verið kynntur. Frekari kynningar á leiknum eru framundan, m.a. á stórri leikjaráðstefnu í Los Angeles í næstu viku. Í auglýsingu stjórnar CCP vegna aðalfundarins kemur einnig fram sú tillaga stjórnar að hún fái heimild til þess að hækka hlutafé um allt að 625 þúsund að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta í tengslum við skuldabréfalánið. Tæknisíðan Tech Crunch greindi frá því fyrr á þessu ári að heildartekjur CCP í fyrra hefðu numið um 66 milljónum dala, eða sem nemur um 8,3 milljörðum króna. Sjá má frétt Vísis um umfjöllun Tech Crunch hér.
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Thule lækkar í prósentu Neytendur Mango opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Fleiri fréttir Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Sjá meira