Bretar og Íslendingar í samstarf um sæstreng og jarðhita Kristján Már Unnarsson skrifar 29. maí 2012 17:15 Frá Hellisheiðarvirkjun. Bretar vilja læra af Íslendingum um hitaveitur.
Charles Hendry, orkumálaráðherra Bretlands, og Oddný Harðardóttir iðnaðarráðherra undirrita síðdegis á morgun sameiginlega viljayfirlýsingu landanna um samstarf á sviði orkumála. Undirskriftin fer fram í Hellisheiðarvirkjun. Þetta kemur fram í tilkynningum sem breska sendiráðið og iðnaðarráðuneytið sendu frá sér í dag. Í viljayfirlýsingunni er lögð áhersla á mikilvægi endurnýjanlegra orkugjafa og samvinnu í þróun jarðhitanýtingar í Bretlandi við uppbyggingu hitaveitu. Einnig er sameiginlegur áhugi á jarðvarma í þróunarlöndum með áherslu á verkefni í Austur Afríku, segja ráðuneytið og sendiráðið. Heimsókn breska orkumálaráðherrans til Íslands hefur talsvert verið til umræðu í breskum fjölmiðlum, og hafa stórblöð eins og The Guardian og The Independent gert mest úr möguleikum Breta til að fá orku frá Íslandi um sæstreng og búast við að það verði helsta umræðuefnið. Bretar eru ekki alls ókunnir jarðvarma því litlar jarðhitavirkjanir eru þegar starfræktar á nokkrum stöðum í Englandi, meðal annars í borgunum Newcastle og Southampton. Þeir hafa áhuga á enn frekari uppbyggingu á þessu sviði og vilja leita í smiðju til Íslendinga. Á fimmtudagsmorgun mun breski ráðherrann m.a. flytja ávarp á ráðstefnu sem haldin er í Arionbanka og ber yfirskriftina: "Orkumál Evrópu - tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki?" Að ráðstefnunni standa UK Trade & Investment, Arion banki og Orkustofnun. Í fundarboði segir að á evrópskum orkumarkaði séu miklar hræringar. Breytt umhverfi feli í sér ný sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki. Á ráðstefnunni verður farið ítarlega yfir þessi mál og áhersla lögð á þau tækifæri sem bjóðast íslenskum orkufyrirtækjum.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira