Viðskipti innlent

Gjaldeyrishöftin hindra skráningu í Icelandair í Noregi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ákveðið hefur verið að fresta skráningu Icelandair í kauphöllina í Osló um óákveðinn tíma. Ástæðan er sú að enn á eftir að leysa úr ákveðnum úrlausnarefnum sem tengjast gjaldeyrishöftunum.

Þann 3. febrúar síðastliðinn tilkynnti stjórn Icelandair Group hf. um áætlanir félagsins að vinna að mögulegri viðbótarskráningu á hlutabréfum félagsins í kauphöllina. Félagið réði í framhaldinu SEB Enskilda og Íslandsbanka hf. sem ráðgjafa sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×