Viðskipti innlent

Fögnuðu fyrsta fluginu til Denver

Beint áætlunarflug Icelandair til Denver í Colorado hófst í dag og var athöfn að því tilefni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þar sem flugfreyjukórinn tók meðal annars lagið fyrir gesti.

Steingrímur J. Sigfússon efnahags- og viðskiptaráðherra var á meðal gesta í Leifsstöð í dag. „Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Icelandair, Michael B. Hancock, borgarstjóri Denver, Luis E. Arreaga sendiherra US á Íslandi og Kim Day, flugvallarstjóri í Denver fluttu ávörp og þakkaði Birkir Hólm gestunum frá Denver kærlega fyrir mikinn og góðan stuðning við að opna þessa nýju mikilvægu flugleið félagsins til Denver.

Borgarstjóri Denver sagði að strax eftir fyrsta fund með fulltrúum Icelandair hefði vaknað mikill áhugi á því að opna flugleið milli Íslands og Denver. Hann sagði áhrif þessarar nýju flugleiðar mjög mikil og það væri sér sönn ánægja að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni með Icelandair," segir í tilkynningu frá Icelandair.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×