Viðskipti innlent

365 miðlar hafa tvær vikur til að svara kvörtun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ari Edwald er forstjóri 365 sem rekur Fréttablaðið, Vísi og fleiri miðla.
Ari Edwald er forstjóri 365 sem rekur Fréttablaðið, Vísi og fleiri miðla.
365 miðlar munu hafa tvær vikur til þess að svara kvörtun sem útgefandi Viðskiptablaðsins sendi til Samkeppniseftirlitsins í dag. Útgáfufélag Viðskiptablaðsins sakar 365 miðla meðal annars um brot sem fela í sér í einkakaup, tryggðarafslætti, skaðlega undirverðlagningu og samtvinnun ólíkrar þjónustu.

„Þetta er rétt komið í hús hérna frá Samkeppniseftirlitinu," segir Ari Edwald, forstjóri 365, í samtali við Vísi. Hann segir kæruna vera léttvæga. „Mér sýnist þeir aðallega vera að kvarta yfir því að við höfum gefið einhverjum Fréttablaðið sem hluti af stærri viðskiptum. En það er nú fríblað eins og menn þekkja," segir Ari.

Ari, sem er fyrrverandi ritstjóri Viðskiptablaðsins, segir það hafa komið sér á óvart að útgefendur Viðskiptablaðsins, sem er sérrit um viðskipti, telji sig starfa á sama markaði og almennt fréttablað sem er dreift ókeypis til almennings. „Það kemur mér á óvart sem fyrrum ritstjóra blaðsins. Á þeim tíma töldum við okkur vera sérrit um viðskipti og efnahagsmál sem veittu verðmæta sérþjónustu," segir Ari.


Tengdar fréttir

Myllusetur kvartar yfir 365-miðlum

Myllusetur, útgáfufélag Viðskiptablaðsins, hefur sent kvörtun til Samkeppniseftirlitsins vegna meintrar misnotkunar 365-miðla, sem reka m.a. Vísi.is, Fréttablaðið og Stöð 2, á markaðsráðandi stöðu sinni. Frá þessu er greint í yfirlýsingu frá útgefanda og stærsta eigand Viðskiptablaðsins, Pétri Árna Jónssyni, en hún er birt á vef Viðskiptablaðsins, vb.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×