Viðskipti innlent

Greining Arion: Frekari vaxtahækkanir í pípunum

Arion banki.
Arion banki.
„Seðlabanki Íslands hækkaði vexti um 50 punkta í dag. Hinir virku vextir Seðlabankans, þ.e. meðaltal innstæðubréfa og innlánsvaxta, er því í dag 4,88%. Að okkar mati er útlit fyrir frekari vaxtahækkanir á árinu enda bendir flest til þess að verðbólga næstu árin verði langt yfir markmiðum bankans. Við teljum þó að Seðlabankinn muni láta 25 punkta vaxtahækkun duga við ákvörðun vaxta í júní, haldi þeim óbreyttum í ágúst, en gefi svo aftur í þegar komið er fram á haustið." Þannig hljómar upphafið á markaðspunktum greiningardeildar Arion banka, í kjölfar hækkunar Peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum, í 5,5 prósent.



Í markaðspunktunum segir enn fremur að vaxtahækkunin næst verði 0,25 prósent næst, þar sem aðeins ein verðbólgumæling verði „komin í hús, gengi krónunnar muni að öllum líkindum haldast stöðugt (eða jafnvel styrkjast) og verðbólguhorfur til skemmri tíma séð batnað. „Í ágúst munu svo júní og júlí verðbólgutölur liggja fyrir, en við teljum ágætis líkur á umtalsverðri verðhjöðnun í júlí, sem mun slá á vaxtaþorsta peningastefnunefndar. Hins vegar þegar við horfum fram á haustið teljum við að sagan endurtaki sig, þ.e. að krónan gefi eftir, verðbólgan fari hækkandi og í framhaldi verði aðhaldsstigið aukið. Því gerum við nú ráð fyrir 75 punkta hækkun vaxta til ársloka, og að vextir muni hækka um 100 punkta á því næsta."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×