Viðskipti innlent

Íbúðaverð á landinu hækkaði um 1,5% í apríl

Íbúðaverð á landinu öllu hækkaði um 1,5% í apríl samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Munar þar mestu um að íbúðaverð á landsbyggðinni hækkaði um 5,4% frá fyrri mánuði.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að íbúðaverð hafi hækkað um 13% frá því að það fór lægst árið 2010, og þess sé ekki langt að bíða að sú nafnverðslækkun sem varð á húsnæði í kjölfar hrunsins hafi gengið alfarið til baka.

Raunverð íbúða verður hinsvegar enn um sinn langt undir því sem það fór hæst. Er raunverð íbúða nú tæplega fimmtungi lægra en það var í árslok 2008.

Íbúðamarkaðir í nágrannalöndum okkar hafa víða átt erfitt uppdráttar síðustu misserin og viðsnúningurinn lætur víða á sér standa. Í Finnlandi lækkaði íbúðaverð um 2,4% á síðasta ári, um 5,3% í Svíþjóð og nærri 6% í Danmörku.

Í Noregi kveður hinsvegar við annan tón, en þar hækkaði íbúðaverð um 7% á síðasta ári að raunvirði. Íbúðaverð hér á landi hækkaði um 1,8% að raunvirði á síðasta ári samkvæmt þessum sama mælikvarða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×