Viðskipti innlent

Hampiðjan greiðir 124 milljónir í arð til hluthafa

Hluthafar Hampiðjunnar fá greiddar rúmlega 124 milljónir króna í arð fyrir síðasta ár. Þetta var samþykkt á aðalfundi félagsins fyrir helgina.

Í tilkynningu um málið til Kauphallarinnar segir að upphæðin nemi 1,9% af eiginfé Hampiðjunnar um síðustu áramót.

Þá var ákveðið að þóknun til stjórnarmanna fyrir síðasta ár verði 700.000 kr. en stjórnarformaður fær þrefalda þá upphæð eða 2,1 milljón króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×