Viðskipti innlent

Plastprent í opið söluferli

Framtakssjóður Íslands hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingabanka hf. að annast formlegt söluferli vegna fyrirhugaðrar sölu á öllu hlutafé Plastprents ehf. sem er í 100% eigu sjóðsins.

Í tilkynningu frá Framtakssjóði segir að söluferlið sé opið öllum áhugasömum fjárfestum sem geta sýnt fram á fjárfestingagetu umfram 250 milljónir króna og búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu eða uppfylla skilyrði þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. „Seljendur áskilja sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, m.a. ef lagalegar takmarkanir eru á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu svo sem vegna samkeppnisreglna."

Þá segir að óskað sé eftir skuldbindandi tilboðum með sérstaklega tilgreindum fyrirvörum fyrir kl. 12:00, mánudaginn 21. maí 2012, byggt á þeim gögnum sem afhent verða. „Seljandi mun velja hagstæðustu tilboðin að hans mati og verður fjárfestum sem skiluðu inn þeim tilboðum boðin þátttaka í öðru stigi söluferlisins."

Áhugasömum fjárfestum er bent á að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu Straums, www.straumur.com. Einnig er hægt að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Straums fjárfestingabanka hf. í síma 585 6600 eða með því að senda tölvupóst á netfangið plastprent@straumur.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×