Viðskipti innlent

Watson kaupir Actavis fyrir 700 milljarða

Fabrizio Campelli, yfirmaður fjárfestinga Deutche Bank, Paul Bisaro, forstjóri Watson og Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Novator undirrita samninginn.
Fabrizio Campelli, yfirmaður fjárfestinga Deutche Bank, Paul Bisaro, forstjóri Watson og Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Novator undirrita samninginn.
Bandaríska lyfjafyrirtækið Watson hefur gengið frá samningum um kaup á Actavis. Kaupverðið er samtals 4,25 milljarðar evra, eða um 700 milljarðar króna samkvæmt tilkynningu frá Björgólfi Thor Björgólfssyni.

Þar segir að lang stærsti hluti þeirrar upphæðar felur í sér endurgreiðslu á lánum. Þar er Deutsche Bank stærsti lánardrottinn, en einnig áttu Landsbankinn, Straumur og Glitnir verulegra hagsmuna að gæta. Tugir milljarða króna renna til íslensku bankanna við þessa sölu.

Í samningunum felst að Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, eignast hlut í sameinuðu félagi , en stærð þess hlutar ræðst af afkomu Actavis. Eftir kaupin verður sameinað félag þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims.

„Ég átti frumkvæði að samningum við Watson, stýrði þeim í höfn og er sáttur við niðurstöðuna," segir Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Novator í tilkynningunni.

„Það lá beint við að kanna áhuga Watson á kaupum enda fjársterkt félag með öflugan rekstur og metnaðarfull markmið. Ég er sammála framtíðarsýn stjórnenda Watson og er sannfærður um að þetta sé rétt skref fyrir Actavis."

Actavis breyttist á nokkrum árum úr íslensku lyfjaheildsölunni Pharmaco, með veltu upp á 3,5 milljarða kr., í eitt af stærstu félögum á samheitalyfjamarkaði í heiminum, með um 10 þúsund starfsmenn í 40 löndum og veltu upp á 350 milljarða króna.

Salan á Actavis er stór þáttur í skuldauppgjöri Björgólfs Thors og Novators við lánardrottna sem skýrt var frá í júlí 2010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×