Viðskipti innlent

Krónan réttir úr kútnum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Svo virðist sem lát hafi nú orðið á veikingu krónunnar, en gengi hennar hefur verið nokkuð stöðugt í aprílmánuði. Gengisvísitalan stendur nú í rétt rúmlega 227 stigum og hefur gengi krónunnar gagnvart helstu gjaldmiðlum nú styrkst um 0,7% frá því í mánaðarbyrjun.

Greining Íslandsbanka segir að þessi örlitla styrking sé afar kærkomin í ljósi þess að krónan hafi verið í nær stöðugum veikingarham á fyrsta fjórðungi ársins, en frá áramótum til loka marsmánaðar veiktist krónan um 5,5%. Þannig hafi gengisvísitalan í lok síðasta mánaðar verið komin yfir 229 stig og gengi krónunnar hafði þá ekki verið svo lágt í tvö ár. Núna virðist hinsvegar hafa orðið lát á veikingu hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×