Viðskipti innlent

Kínverjar og Rússar ætla að hanna flugvél saman

Kínverjar og Rússar undirrituðu í dag viðskiptasamninga á milli þjóðanna sem er talinn vera um 15 milljarða dollara virði. Meðal þess sem var undirritað var hönnun á nýrri farþegaþotu, en samningarnir ná einnig til orkuiðnaðar og samskiptatækni.

Það var aðstoðarforsætisráðherra Kína sem undirritaði samninginn í Moskvu í dag ásamt aðstoðarforsætisráðherra Rússlands. Nú fer fram viðskiptaráðstefna í Moskvu sem hundruðir kínverskra viðskiptamanna sækja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×