Rætt um hvort leyfa eigi hreindýrum nýtt landnám Kristján Már Unnarsson skrifar 11. apríl 2012 19:30
Íbúar á Norðausturlandi hafa verið boðaðir til fundar á Þórshöfn í kvöld um nýtt landnám hreindýra. Merki sjást um að dýrin sæki í ný svæði á landinu utan hefðbundinna heimkynna á Austurlandi, en yfirvöld hafa til þessa brugðist við með því að skjóta slík dýr. Þegar hreindýr voru fyrst flutt inn til Íslands fyrir 240 árum var þeim dreift á nokkur svæði víða um land en nú finnast þau eingöngu á austasta hluta landsins; austan Breiðamerkursands, Vatnajökuls og Jökulsár á Fjöllum og sunnan Langaness. Skarphéðinn Þórisson, hreindýrasérfræðingur Náttúrustofu Austurlands, segir hreindýrin hánorræn dýr þannig að þau myndu lifa allsstaðar á Íslandi. Þau hafi það hvergi eins gott og hérna. Frjósemi og líkamlegt ástand þeirra sé eins og best þekkist í heiminum. Af ótta við sauðfjársjúkdóma eru hreindýr skotin ef þau leita annað, eins og sunnan Vatnajökuls, ef þau reyna að komast úr Suðursveit vestur í Öræfi, sem Skarphéðinn segir að yfirvöld vilji ekki að gerist. Tvö nýleg dæmi eru um að hreindýr hafi farið um hálendið í átt til Suður- og Vesturlands, dýr sem sáust við Vatnsfellsvirkjun og á Arnarvatnsheiði. En þau leita núna einnig lengra norður, í átt að Langanesi og Þistilfirði, þar sem þau hafa reyndar verið áður, og segir Skarphéðinn að ef þeim haldi áfram að fjölga þar muni þau leggja undir sig Norðausturland, ef það sé talið æskilegt, ef heimamenn vilji fá þau og ef yfirvöld ákveði það. Og það á einmitt að ræða á íbúafundi á Þórshöfn í kvöld þar sem fundarefnið er aukinn ágangur og hugsanlegt landnám hreindýra við Langanes og Þistilfjörð. En afhverju mega þau ekki vera í öðrum landshlutum, eins og á Vestfjörðum og Arrnarvatnsheiði? Skarphéðinn segir að því verði aðrir að svara en kveðst skilja þau rök að menn taki ekki þá áhættu að flytja hreindýr ef þau geti hugsanlega flutt sjúkdóma, eins og riðu og garnaveiki.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira