Viðskipti innlent

Kærir málsmeðferð sérstaks saksóknara til umboðsmanns Alþingis

Ólafur Hauksson.
Ólafur Hauksson.
„Mér finnst þetta frekar „sloppí" rannsókn og hæpið að þeir séu hæfir til þess að rannsaka mál þar sem þeirra eigin starfsmaður kemur að málinu," segir Ólafur Hauksson, einn af stofnendum Iceland Express, en hann skrifar grein í Fréttablaðið og á Vísi í dag þar sem hann lýsir átökum sínum við endurskoðendafyrirtækið Deloitte og svo síðar sérstakan saksóknara.

Fyrrverandi starfsmaður Deloitte starfar nú sem verktaki og ráðgjafi hjá Sérstökum saksóknara og vill Ólafur meina að embættið sé óhæft til þess að rannsaka mál sem hann kærði árið 2008. Hann hefur því skotið því til umboðsmanns Alþingis.

Forsaga málsins er sú að snemma árs 2006 mættu tveir af stofnendum Iceland Express á fund hjá Deloitte. Ólafur lýsir þessu svo í grein sinni:

„Þar óskuðu þeir eftir skýringum Deloitte á hrikalegu misræmi í afkomutölum Iceland Express. Haustið 2005 höfðu stofnendur Iceland Express selt Pálma Haraldssyni og félaga hans síðustu 8% hluta sinna í félaginu. Umsamið verð grundvallaðist á verðmati sem sagt var frá Deloitte. Í verðmatinu var hagnaður Iceland Express áætlaður aðeins 89 milljónir króna á árinu og því næsta miðað við stöðu félagsins. Aðeins fjórum mánuðum síðar kom hins vegar í ljós í tölum frá Deloitte að hagnaður ársins var í raun áætlaður 290 milljónir á því ári – þrefalt hærri. Hagnaður næsta árs á eftir var áætlaður 700 milljónir – ekki 89 eins og í „verðmatinu".

Ólafur vill meina að verðmatið sé byggt á gögnum sem komu frá Pálma Haraldssyni. Þannig hafi vitlaus mynd verið gefin af raunvirði fyrirækisins, og þannig hafi Ólafur verið snuðaður um tugi milljóna.

En þá flækjast málin talsvert. Ólafur vill meina að í ljós hafi komið að verðmatið hafi verið sett fram til þess eins og að blekkja hann. Hann kærði málið árið 2008 til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Þeirri rannsókn var síðar hætt.

Þá niðurstöðu kæri hann til ríkissaksóknara sem skipar efnahagsbrotadeildinni, sem sameinast síðar embætti sérstaks saksóknara, að taka rannsóknina upp á ný. Það var í ágúst 2011.

Aftur varð niðurstaðan sú sama. Málið var fellt niður vegna ónógra sannana, meðal annars fannst aldrei hið umdeilda verðmat sem Ólafur heldur sjálfur fram að hann hafi séð hjá Deloitte. Þetta er því ósannað með öllu. Ólafur hefur brugðist við niðurstöðunni og kvartað undan málsmeðferðinni til Umboðsmanns Alþingis, þar sem hann telur embætti sérstaks saksóknara ekki hæft til þess að rannsaka málið, því Stefán D. Franklín starfar nú sem endurskoðandi hjá sérstökum saksóknara, en hann kom áður að dularfulla verðmatinu, að sögn Ólafs.

Þá vill Ólafur meina að það hafi verið fleiri brotalamir á rannsókninni.

Ekki er vitað hvenær Umboðsmaður Alþingis mun taka málið fyrir en málsmeðferðin getur tekið talsverðan tíma.

Hér fyrir neðan má lesa grein Ólafs þar sem hann rekur forsögu málsins nákvæmlega.


Tengdar fréttir

Af samskiptum við Deloitte og sérstakan saksóknara

Ég finn mig knúinn til að segja stuttlega frá samskiptum mínum og félaga minna við Deloitte. Tilefni skrifanna er umræða um hvort álit frá fyrirtækinu fáist keypt. Því hefur Deloitte reyndar neitað. Sérstakur saksóknari kemur hér einnig við sögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×