Barnaheill vill finna leið til þess að bæta tannheilsu íslenskra barna 12. apríl 2012 15:29
Barnaheill – Save the Children á Íslandi vilja beina þeim tilmælum til yfirvalda, tannlækna og samfélagsins alls að sameinast um að finna leið út úr því öngstræti sem tannheilsa íslenskra barna er komin í. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheillum. Þar segir ennfremur að brýnt sé að stöðva þá óheillaþróun sem orðið hefur í þessum málum hér á landi á mjög skömmum tíma. Allir hlutaðeigandi verða að sýna ábyrgð, samningsvilja og dirfsku eigi það að takast. Á málþingi samtakanna, sem haldið var 28. mars sl., þar sem fjallað var um tannheilsu íslenskra barna, kom skýrt fram hversu slæm þróunin hefur verið á liðnum árum. Á aðeins 16 ára tímabili hefur Ísland farið úr því að vera í hópi tíu efstu þjóða meðal OECD-landa hvað tannheilsu 12 ára barna varðar, í það að vera í sjötta neðsta sæti. Barnaheill telur að ef ekki verði gripið til aðgerða strax, þurfi ekki að spyrja að leikslokum. Nú stendur yfir undirskriftasöfnun á vef Barnaheilla þar sem þeim tilmælum er beint til yfirvalda að gripið verði þegar í stað til aðgerða til að snúa við þeirri óheillaþróun sem orðið hefur á tannheilsu barna síðustu 16 ár. Hægt er að nálgast undirskriftarsöfnunina hér. Hægt er að lesa tilkynningu frá Barnaheillum í heild sinni hér fyrir neðan:Þegar kemur að tannheilsu barna virðist sá hlekkur heilbrigðiskerfisins vera nánast brostinn, eins og staðan er í dag. Þetta ástand má rekja til nokkurra samverkandi þátta á borð við breytt skipulag tannlækninga og endurgreiðslna ásamt sífellt meiri neyslu sykraðra matvæla s.s. gosdrykkja- og sælgætis.Barnaheill – Save the Children á Íslandi leggja áherslu á að samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem Ísland hefur staðfest, eiga börn rétt á að njóta besta mögulegs heilsufars sem hægt er að tryggja þeim með læknisaðstoð og heilbrigðissþjónustu. Í 2. gr. sáttmálans er kveðið á um jafnræði barna og banni við mismunun, meðal annars á grundvelli félagslegrar stöðu. Aðildarríkjum ber að tryggja börnum réttindi sáttmálans, eftir því sem þau frekast geta. Þá er ábyrgð foreldra mikil og skýr.Það leikur enginn vafi á því, að það er siðferðisleg og þjóðréttarleg skylda íslensks samfélags að tryggja öllum íslenskum börnum aðgang að tannvernd. Ekki er úr vegi að minna á að nýverið samþykkti allsherjarþing SÞ valfrjálsa bókun um kæruferli vegna brota gegn ákvæðum barnasáttmálans. Slíkt kæruferli styrkir réttindi barna um heim allan og stuðlar að betri vitund meðal ríkja heims um mikilvægi þess að virða mannréttindi barna og þar með barnasáttmálann. Rétt er að benda á, að íslensk yfirvöld studdu við gerð bókunarinnar hjá Mannréttindaráði SÞ.Fyrir dyrum stendur lögfesting barnasáttmálans hér á landi. Það má leiða líkum að því að af henni geti ekki orðið á meðan fyrirkomulag tanneftirlits er með þeim hætti sem nú er.Barnaheill – Save the Children á Íslandi beina því til yfirvalda, tannlækna og samfélagsins að:1. Ljúka sem fyrst gerð heilbrigðisáætlunar til ársins 2020. Þar komi fram markmið og áætlanir yfirvalda um tannheilsu þjóðarinnar, ekki síst barna. Brýnt er í slíkri áætlunargerð að taka sérstakt tillit til viðkvæmra hópa á borð við tekjulága og innflytjendur og að börn hvarvetna á landinu hafi jafnan aðgang að tannheilbrigðisþjónustu. Þá verða forvarnir og meðferðarúrræði að haldast í hendur, enda sitthvor hliðin á sama peningi.2. Heilbrigðisáætluninni fylgi tímasett og opinber aðgerðaáætlun, svo samtök á borð við Barnaheill – Save the Children á Íslandi og almenningur allur geti veitt yfirvöldum og öðrum hlutaðeigandi aðhald.3. Kynnt verði á Alþingi reglugerð um skipulagt tanneftirlit, sem taki mið af þeim markmiðum sem sett eru fram í heilbrigðisáætluninni.4. Efla samstarfið á milli annars vegar heilbrigðiskerfisins og hins vegar félagslega kerfisins, þannig að haldið sé utan um öll börn landsins. Tryggja þarf að réttur þeirra til heilsuverndar og til verndar gegn vanrækslu sé tryggður.5. Allir aðilar sýni vilja til þess að breyta því ástandi sem nú ríkir í tannvernd barna og vinni að lausnum af ábyrgð og staðfestu.Barnaheill – Save the Children á Íslandi munu nú sem fyrr standa vörð um rétt barna eins og hann er skilgreindur í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Samtökin skuldbinda sig til að fylgja þessu brýna heilbrigðismáli barna eftir af fullum þunga, svo lengi sem þörf krefur.Nú stendur yfir undirskriftasöfnun á vef Barnaheilla – Save the Children á Íslandi þar sem þeim tilmælum er beint til yfirvalda, tannlækna og samfélagsins alls að gripið verði þegar í stað til aðgerða til að snúa við þeirri óheillaþróun sem orðið hefur á tannheilsu barna síðustu 16 ár. Undirskriftirnar verða afhentar velferðarráðherra 12. september næstkomandi á alþjóðlega tannverndardeginum. Það er von og trú samtakanna, að þá muni ráðherra geta fært íslenskum börnum jákvæðar fréttir af því hver stefna yfirvalda sé í þessum mikilvæga málaflokki og til hvaða ráðstafana verði gripið, til þess að snúa óheillaþróuninni við.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira