Íslensku metanóli blandað saman við bensín Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 12. apríl 2012 19:24
Vonast er til að framleiða um fimm milljónir lítra af metanóli á ári í fyrstu íslensku metanólverksmiðjunni sem opnuð var formlega í dag. Metanóli úr verksmiðjunni er blandað saman við bensín til að gera það vistvænna. Metanólverksmiðja Carbon Recycling International í Svartsengi hóf vinnslu í nóvember en opnunarhátíð hennar var haldin í dag. Í verksmiðjunni er koltvísýringur frá virkjun HS Orku notaður til að vinna vistvæna eldsneytið metanól. Áform eru um að metanólið verði síðan notað til íblöndunar við bensín til að gera það vistvænna. „Við gerum ráð fyrir því að geta framleitt um 5 milljónir lítra á ári þegar þessi verksmiðja er komin í fulla stærð. Það myndi nægja íslenska markaðnum til að blanda um þrjú prósent metanól í allt íslenskt bensín, sem er það magn sem nú er leyfilegt á alla nýja bíla," segir Benedikt Stefánsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Blöndun metanóls út í bensín er eitt af skrefum Íslands til að uppfylla skilyrði Evrópusambandsins um vistvænna eldsneyti og þannig minnka útblástur. Stjórnvöld eiga hins vegar eftir að ákveða hversu mikil íblöndunin skuli vera. „Við erum að bíða eftir því að olíufélögin breyti líka grunneldsneytinu svo það leyfi þessa íblöndun og þegar það er komið í höfn getum við byrjað." Kees Hettinga, hjá hollenska olíufyrirtækinu Argos hefur miklar reynslu af blöndun metanóls í bensín og segir verksmiðjuna hér vera skref í rétta átt fyrir Íslendinga. „Þetta er framtíð eldsneytis, að minnsta kosti eins og staðan er núna, þangað til við getum öll farið að nota rafmagn," segir hann. Margir eru spenntir fyrir metanól framleiðslu hér á landi, þar á meðal þessir rallýökuþórar sem eru búnir að breyta bílum sínum í hundrað prósent metanólbíla. „Þetta var nú fyrst bara forvitni að prófa eitthvað nýtt, ekki skemmir fyrir að þetta er umhverfisvænt, alveg íslenskt og svo bætir það kannski að maður gæti náð smá meiri orku," segir Hörður Torfi McKinstrey, keppandi hjá Tomcat.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira