Viðskipti innlent

Dauft yfir fasteignamarkaðinum í páskavikunni

Frekar dauft var yfir fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu í páskavikunni í síðustu viku eins og nær ávallt er.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga í vikunni var 71. Þar af voru 49 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.155 milljónir króna, að því er segir á vefsíðu Þjóðskrár Íslands.

Til samanburðar má nefna að 87 samningum hefur verið þinglýst að meðaltali undanfarnar 12 vikur og heildarveltan á því tímabili hefur numið rúmlega 2,6 milljörðum króna á viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×