Viðskipti innlent

Tæplega fimm milljarða skuldir afskrifaðar hjá móðurfélagi Odda

Magnús Halldórsson skrifar
Þorgeir Baldursson, oft kenndur við Odda.
Þorgeir Baldursson, oft kenndur við Odda.
Tæplega fimm milljarða króna skuldir móðurfélags Odda, eignarhaldsfélagsins Kvosar, hafa verið afskrifaðar að því er greint er frá í DV í dag. Þorgeir Baldursson, fyrrverandi stjórnarmaður Landsbankans sem oft er kenndur við prentsmiðjuna Odda, var skráður stærsti eigandi Kvosar með ríflega fjórðungshlut, áður en kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins.

Gömlu eigendur Kvosar, með Þorgeir innanborðs, hafa keypt Kvos á 500 milljónir króna eftir um fimm milljarða afskriftir, samkvæmt DV. Eftir þeirri aðferðafræði hefur oft verið farið við endurskipulagningu fyrirtækja að gömlu eigendur og stjórnendur fyrirtækjanna, geti haldið fyrirtækjunum áfram sem eigendur með því að leggja fram nýtt eigið fé, og fá skuldir umfram eignir afskrifaðar.

Landsbankinn og Arion banki gefa eftir skuldirnar, samkvæmt fréttum DV. Landsbankinn afskrifaði tæplega þrjá milljarða og Arion banki ríflega tvo milljarða, samkvæmt skýrslu endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte sem DV vitnar til. Félagið var skuldum vafið eftir hrun fjármálakerfisins og krónunnar, og skuldaði í lok árs 2009 tæplega níu milljarða króna.

Stærsti eigandi Kvosar hefur verið Þorgeir Baldursson, en hann er forstjóri félagsins. Baldur, sonur Þorgeirs, er framkvæmdastjóri félagsins, að því er greint er frá í DV.

Á þriðja hundrað starfsmenn vinna hjá Odda samstæðunni, það er móðurfélaginu Kvos og dótturfélögum, en félagið er með 37 prósenta markaðshlutdeild á prentmarkaðnum á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×