Taka þarf sjávarútvegsfrumvörpin til gagngerrar skoðunar 18. apríl 2012 14:55
Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkti umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og frumvarp til laga um veiðigjöld en þar eru gerðar verulegar athugasemdir við frumvörpin og einstakar greinar þeirra. Í tilkynningu bæjarráðs segir að frumvarp til laga um stjórn fiskveiða þurfi að taka til gagngerrar skoðunar og að lækka þurfi veiðigjöld verulega. Þá segir að óbreytt lami það fjárfestingu í sjávarútvegi, kæfi nýsköpun og framþróun greinarinnar og þar með þær byggðir sem byggja afkomu sína að verulegu leyti á sjávarútvegi. „Bæjarráð Hornafjarðar hefur ítrekað lagt áherslu á að leita beri sátta meðal þjóðarinnar og hagsmunaaðila um fiskveiðistjórnun, að breytingar á kerfinu skaði ekki sjávarbyggðir og byggja eigi nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi á niðurstöðu sáttanefndar. Því tekur bæjarráð Hornafjarðar undir meginmarkmið frumvarpanna um að skerpa á þeim skilningi að þjóðin sé eigandi auðlindarinnar, að nýtingarrétturinn sé tímabundinn með þeim fyrirvara að endurnýjun nýtingarsamninga sé skýr og að þjóðin njóti afraksturs af nýtingu auðlindarinnar í meira mæli en nú er þó bæjarráð Hornafjarðar telji nauðsynlegt að til komi veruleg lækkun á fyrirhuguðum veiðigjöldum eins og þau eru lögð upp í frumvarpinu." Bæjarráð fékk KPMG ehf. til að meta áhrif frumvarpanna á Hornafjörð. Helstu niðurstöður eru að veiðigjöld munu nema samtals rúmum 1.300 m.kr. sem er sjöföldun á núverandi veiðigjaldi. Aflaheimildir munu dragast saman um 640 þorskígildistonn sem leiða til samdráttar í útsvarstekjum upp á 17 m.kr. frá því fiskveiðikerfi sem gilti fyrir gildistöku laga nr. 70/2011. Það mun kosta útgerðir um 200 m.kr. að leigja til sín heimildir af kvótaþingi til að verða jafnsettar og áður fyrir gildistöku laga nr. 70/2011. Að óbreyttu verða veiðigjöld á Höfn í Hornafirði alls 1,3 miljarður króna eða 779 þúsund krónur á hvern íbúa. „Í ljósi niðurstaðna af vinnu KPMG og annarra gagna sem sveitarstjórnarmenn hafa kynnt sér hefur bæjarráð Hornafjarðar verulega þungar áhyggjur af þeim breytingum sem kynntar hafa verið á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Ef málin verða afgreidd frá Alþingi samkvæmt fyrirliggjandi drögum, munu þau hafa veruleg neikvæð áhrif á grunnatvinnugrein sveitarfélagsins með tilheyrandi fækkun starfa, samdráttar í hinu staðbundna hagkerfi á Hornafirði og eykur því óvissu um framtíðarþróun samfélagsins," segir að lokum.
Mest lesið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Innlent Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Erlent Fleiri fréttir Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sjá meira