Sakar ráðherra um aumingjavæða sjávarútveginn 18. apríl 2012 19:15
Formaður LÍÚ sakaði sjávarútvegsráðherra um að eyðileggja og aumingjavæða sjávarútveginn með nýjum frumvörpum um fiskveiðistjórnun á hádegisfundi í dag. Ráðherra svaraði fullum hálsi. Það var félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga sem stóð að fundinum á Grand Hótel í dag. Þar var hart tekist á um áhrif nýrra kvótafrumvarpa fyrir landsbyggðina en í pallborði að loknum framsögum sagði formaður LÍÚ að veiðigjaldsfrumvarpið vera hættulegasta frumvarp sem lagt hefur verið fram í þinginu í áratugi. Hans útgerðarfyrirtæki, Gullberg ehf á Seyðisfirði, geti ekki staðið undir hærri veiðigjöldum eins og boðuð væru í frumvörpunum. „Það er mjög erfitt að standa fyrir framan sjómenn sem eru búnir að starfa hjá fyrirtækinu í 44 ár og segja við þá: „Því miður drengir mínir þið verðið ekki í vinnu hjá okkur eftir 1.september,"" sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ. Adolf og Steingrímur tókust síðan hart á um efni frumvarpsins. „Málið er það að við erum að tala um það hvað er sanngjarnt og eðlilegt og það sem þú ert að setja fram er ekki sanngjarnt og eðlilegt," sagði Adolf. „Tölurnar sem þið eruð með og grunnurinn sem þið eruð að vinna á í þessu veiðigjaldsfrumvarpi, mun eyðileggja íslenskan sjávarútveg eftir 2032 með banni á framsali og öðru," sagði Adolf. „Þið takið út alla hagkvæmni og hvata. Þið viljið gera okkur alla að leiguliðum og aumingjum." „Við ættum kannski aðeins að tala um af hverju skuldirnar eru svona miklar, og hvernig kerfi sem ekki má anda á hefur reynst í þeim skilningi, var það ekki að hluta til hvernig það kerfi virkaði þegar þið voruð að kaupa aðra út úr greininni, það er það sem ég var að tala um," sagði Steingrímur J. Sigfússon.
Mest lesið Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Innlent Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Innlent Bein útsending: Minningarathöfn Charlie Kirk Erlent Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Innlent Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Innlent Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Innlent Fleiri fréttir Tré ársins 2025 vex í kletti í Ölfusá Íslendingar í flugumferðarstjórn á stærsta flugvelli Grænlands Braust inn og stal bjórkútum Vilja ryðja brautina fyrir aðra í baráttunni við andlitslaust kerfi Eldur kviknaði í íbúð í Bakkahverfi Sjálfstæði Palestínu, minningarathöfn um Kirk og tré ársins Segir það slæma hugmynd að útfæra áminningarskyldu fyrir allan vinnumarkaðinn Tveir fluttir á slysadeild eftir slys við Hvalfjarðargöng Hver verður formaður Pírata?: „Ekki séns“ „Dreifbýlið hefur alltaf haft áhyggjur af því að fjármagnið sogist til þéttbýlisins“ Þorgerður Katrín endurkjörin Frítt í Strætó á Bíllausa deginum á morgun Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Viðreisn verður áfram bara Viðreisn Einhverjar breytingar þurfi að eiga sér stað innan Framsóknar Sjálfstæð Palestína, væringar í Framsókn og fækkun um eitt sveitarfélag Sameining sveitarfélaganna hafi lítil áhrif á daglegt líf íbúa Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Sjá meira