"Hún flissaði í fjórar klukkustundir" 18. apríl 2012 22:33 Merla og Patricia tóku við vinningnum í dag. mynd/AP
Öldruð hjón í Illinois í Bandaríkjunum stigu fram í dag og tóku við ávísun upp á 218 milljónir dollara. Þau áttu einn af þremur vinningsmiðum í einu stærsta happdrætti sögunnar. Þau Merle og Patricia Butler keyptu þrjá miða stuttu áður en dregið var í Mega Millions happdrættinu í síðasta mánuði. Merle er uppgjafarhermaður en hann barðist í Víetnam-stríðinu. Eiginkona hans er fyrrverandi hjúkrunarkona. Happdrættismiðarnir kostuðu hjónin alls 3 dollara - þetta voru því sannarlega góð kaup enda fengu þau rúma 27 milljarða króna í sinn hlut. Þau ákváðu að fá nýfengin auðævi sín í einni greiðslu og þurfa því að greiða hluta af fjárhæðinni í skatta.Merle með vinningsmiðann dýrmæta.mynd/AP„Patricia sat við hliðin á mér. Ég horfði á hana og sagði að við hefðum unnið," sagði Merle. „Hún horfði síðan hálf undarlega á mig og ég sagði það aftur." „Hún flissaði síðan í fjórar klukkustundir," bætti Merle við. Hjónin ákváðu að bíða með að gera tilkall til vinningsins. Síðustu daga hafa þau leitað að framúrskarandi fjármálaráðgjafa sem mun leiðbeina þeim. „Ætli við förum ekki í almennilegt sumarfrí á næstunni," sagði Merle.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Sjá meira