Gjaldeyrishöftin rýmkuð en eftirlit með þeim hert 2. apríl 2012 10:39
Í nýju frumvarpi um breytingu á gjaldeyrislögum sem efnahags- og viðskiptaráðherra leggur fram felst í raun bæði lítilsháttar rýmkun á gjaldeyrishöftunum og hert eftirlit með höftunum og strangari viðurlög gegn brotum. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að helstu breytingar sem miða að rýmkun hafta eru m.a. hækkun framfærsluheimilda, rýmkun endurfjárfestingaheimilda og frekari heimildir til gjaldeyrisviðskipta í tengslum við atvinnustarfsemi og rýmkun á heimild til erlendrar lántöku. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir heimild fyrir innlenda aðila til kaupa á farartæki til eigin nota innan lands fyrir allt að jafnvirði 10 milljónir kr. Viðskiptin verða háð staðfestingu Seðlabankans. Í stuttu máli má segja að þær breytingar sem gerðar eru til rýmkunar haftanna nú taki mið að veittum undanþágum frá höftunum síðustu 3 ár eða frá því að höftin voru sett. Þannig munu breytingarnar minnka óhagræði og auka skilvirkni með framkvæmd haftanna, en raunveruleg áhrif þeirra verða væntanlega minni háttar. Á móti þessum breytingum sem geta flokkast til rýmkunar haftanna er svo einnig enn verið að herða á höftunum og festa þau enn frekar í sessi m.a. með auknu eftirliti og refsingum. Þannig er til að mynda eftirlit með gjaldeyrisviðskiptum vegna greiðslna vaxta, verðbóta, arðs og samningsbundinna afborgana hert og almenn heimild Seðlabankans til upplýsingaöflunar í þágu eftirlits rýmkuð. Þá fær Seðlabankinn að beita hærri stjórnvaldssektum fyrir smærri brot á höftunum. Eftir sem áður mun bankinn kæra veigameiri brot til lögreglu. Ákveðið var að leggja ekki til að heimila sérstaklega beina erlenda fjárfestingu að þessu sinni, en það er næsti áfangi í afnámi hafta samkvæmt áætlun um losun gjaldeyrishafta. Hins vegar hafa undanþágur verið veittar tiltölulega greiðlega í þeim tilvikum sem innlend útflutningsfyrirtæki geta rökstutt að aukin erlend starfsemi sé nauðsynleg til að styðja við útflutningsstarfsemi. Að auki kemur til álita að eftirspurn eftir erlendum gjaldeyri til beinnar fjárfestingar verði beint inn í útboð Seðlabankans þegar fram líða stundir.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Góð ráð dýr þegar erlenda vinnuaflið kom ekki: „Eitt gler er tvö hundruð kíló“ Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Sjá meira