Viðskipti innlent

Vöruskiptin hagstæð um rúma 5 milljarða í mars

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir mars 2012 var útflutningur 54,4 milljarðar króna og innflutningur 49,3 milljarðar króna.

Vöruskiptin í mars voru því hagstæð um 5,1 milljarð króna samkvæmt bráðabirgðatölum, að því er segir á vefsíðu Hagstofunnar.

Þetta er nokkuð minna en í mars í fyrra þegar vöruskiptin voru hagstæð um 6,5 milljarða króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×