Innlent

Um 150 kílóum af hákarli stolið

Mynd úr safni
Lögreglunni á Suðurnesjum var í vikunni tilkynnt um að um það bil 150 kílóum af verkuðum hákarli hafi verið stolið úr þurrkhjalli í Grindavík. Þjófnaðurinn er til rannsóknar hjá lögreglu.

„Fleiri tilkynningar um þjófnaði bárust lögreglunni í vikunni. Þrír tilkynntu um þjófnaði á gsm símum sínum.

Einum símanum var stolið á bensínstöð, þar sem eigandi hafði lagt hann frá sér stundarkorn. Öðrum síma var stolið á veitingastað í Reykjanesbæ, sem og kápu, og hinum þriðja úr bíl," segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×