Viðskipti innlent

Kaupmáttur eykst og laun hækka áfram

Vísitala kaupmáttar launa í febrúar s.l. er 112,0 stig og hækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,6%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir einnig að launavísitalan í febrúar er 427,1 stig og hækkaði um 2,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 11,3%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×