Ríkið gæti þurft að greiða Ólafi hálfan milljarð Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 25. mars 2012 18:30
Ríkið gæti þurft að greiða félagi í eigu Ólafs Ólafssonar tæpan hálfan milljarð til baka vegna olíusamráðsmálsins. Félagið ætlar að nota peningana í lífeyrisgreiðslur fyrrverandi starfsmanna, ef afgangur verður fer hann til góðgerðarmála. Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í vikunni úr gildi ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála um sektargreiðslur vegna olíusamráðsins árin 1993 til 2001. Íslenska ríkið þarf því að greiða Ker, áður Olíufélaginu Esso, 495 milljónir, Skeljungi 450 milljónir og Olís 560 milljónir. Samtals um einn og hálfan milljarð króna. Tekin hefur verið ákvörðun um að vísa málinu til Hæstaréttar og verða peningarnir ekki endurgreiddir fyrr en niðurstaða liggur þar fyrir. Félögin greiddu sektina í ársbyrjun 2005, eftir úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála, með fyrirvara um lögmæti hennar en tekist hefur verið á um málið fyrir dómstólum allar götur síðan. Eignarhald á Olís hefur lítið breyst síðan þá. Þrátt fyrir að eignarhald á Skeljungi hafi tekið breytingum á þessum árum þá er staðan sú að félagið á sjálft kröfuna og fær hana endurgreidda ef Hæstiréttur staðfestir dóminn. Þessu eru öðruvísi háttað með olíufélagið ESSO það var selt eftir að málið kom upp og heitir í dag N1. N1 fær hins vegar ekki hálfrar milljarðar króna sektargreiðsluna ef af verður heldur Ker sem átti ESSO á sínum tíma. Ker er í eigu fjárfestingarfélagsins Kjalar sem aftur er í eigu Ólafs Ólafssonar sem kenndur hefur verið við Samskip. Ljóst var fyrr í mánuðinum að Ólafur heldur Kjalar eftir að hann gekk frá samningi við Arion banka um skuldir sínar og bankinn tók til sín stóran hlut í HB Granda. Heimir Sigurðsson eini stjórnarmaður Kers segir að peningarnir verði notaðir til að greiða skuldbindingar félagssins sem felast að mestu leyti í lífeyrissgreiðslum til fyrrverandi starfsmanna Olíufélagsins. Stjórn og eigndur Kers hafa síðan ákveðið að allar endurgreiðslur umfram þessar skuldbindingar verða gefnar til góðgerðarmála.
Mest lesið Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Skims opnar í Kringlunni Viðskipti innlent EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Samstarf Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Sjá meira