Viðskipti innlent

Seðlabankinn: Hugsanlegt lágmarksverð 255 krónur fyrir evru

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Hugsanlegt lágmarksverðs í gjaldeyrisútboði Seðlabanka Íslands milli 13:00 og 14:00 í dag, er 255 krónur fyrir evru. Þetta kemur fram á vefsíðu Seðlabanka Íslands, en samkvæmt 4. grein útboðsskilmála vegna kaupa seðlabankans á íslenskum krónum, ber bankanum að tilkynna á vefsíðu sinni um vísbendingu um hugsanlegt lágmarksverð einum og hálfum tíma fyrir útboðið.

Útboðin eru liður í áætlun um afnám gjaldeyrishafta.

Tilkynning seðlabankans á vefsíðu bankans er eftirfarandi:

„Í 4. gr. útboðsskilmála vegna kaupa Seðlabanka Íslands á íslenskum krónum í skiptum fyrir erlendan gjaldeyri vegna útboðs sem fram fer í dag á milli 13:00 og 14:00 er kveðið á um að vísbending um hugsanlegt lágmarksverð í útboðinu verði tilkynnt á heimasíðu Seðlabankans og viðskiptavökum á millibankamarkaði fyrir gjaldeyri einum og hálfum tíma fyrir útboð. Fyrrgreint hugsanlegt lágmarksverð er kr. 255 per EUR.

Sérstök athygli er vakin á að ofangreind vísbending um hugsanlegt lágmarksverð er með engum hætti skuldbindandi fyrir Seðlabankann sem áskilur sér allan rétt til þess að ákveða lægsta verð (lágmarksverð) eftir að tilboðsfrestur rennur út sbr. 4. gr. útboðsskilmálanna."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×