Viðskipti innlent

Kortaveltan nam rúmum 56 milljörðum í febrúar

Heildarkortaveltan á landinu í febrúar síðastliðnum nam rúmlega 56 milljörðum króna og jókst töluvert frá sama mánuði í fyrra.

Heildarvelta debetkorta í febrúar s.l. var 27,1 milljarður kr. sem er 1,6% aukning miðað við febrúar í fyrra.

Heildarvelta kreditkorta í febrúar s.l. var 29,3 milljarðar kr. sem er 14,1% aukning miðað við sama mánuð árið áður. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×