Viðskipti innlent

Marriott-hótel rís við Hörpu

Mynd/Valli
Náðst hefur samkomulag um byggingu Marriott-hótels við hlið tónlistarhússins Hörpu en samningur verður undirritaður um miðjan apríl.

Að sögn Péturs J. Eiríkssonar, stjórnarformanns Sítusar, eiganda Austurhafnarlóðanna, mun fyrirtækið World Leisure Investment byggja hótelið, en það átti hæsta tilboðið í lóðina, eða um 1,8 milljarða króna.

Gert er ráð fyrir að byrjað verði að byggja hótelið í lok árs eða eftir áramót, ef samningar nást. Pétur segir að það séu mikil gleðitíðindi að fá Marriott-keðjuna til landsins en keðjan, sem er bandarísk, hefur opnað um 18 hótel á Norðurlöndunum á síðustu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×