Grindavík aðili að íslenska jarðvarmaklasanum 14. mars 2012 16:43 Róbert Ragnarsson bæjastjóri í Grindavík og Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri Gekon, f.h. íslenska jarðvarmaklasans handsala hér samstarfssamninginn.
Grindavíkurbær hefur fyrst sveitarfélaga á Íslandi, gerst aðili að íslenska jarðvarmaklasanum. Í tilkynningu segir að aðilar að samstarfinu í íslenska jarðvarmaklasanum séu núna orðnir 68 talsins. „Vinnan hverfist kringum 10 samstarfsverkefni af ólíkum toga. Þar má nefna nýsköpunarverkefni, menntun, markaðs-mál jarðvarmans, gagnaöflun, fjármögnun, stjórnun klasans og svo mætti áfram telja. Grindavíkurbær hefur hug á að leggja til vinnu við skilgreiningu á starfsskilyrðum jarðvarmagreinarinnar gagnvart sveitarfélögum. Auk þess hafa bæjaryfirvöld áhuga á að koma að uppbyggingu Auðlindagarðsins á Reykjanesi sem er eitt af viðfangefnum klasasamstarfsins. Grindvíkingar voru frumkvöðlar í nýtingu jarðvarma á Íslandi með byggingu jarðorkuversins í Svartsengi. Frá þeim tíma hefur jarðorkan verið nýtt til ýmissa hluta allt frá húshitun til fiskeldis og ferðaþjónustu. Bláa lónið er gott dæmi um notkun jarðvarma til uppbyggingar í ferðaþjónustu." „Megintilgangur þess að Grindavíkurbær gerist aðili að Íslenska jarðvarmaklasanum er að komast í beint sambandi við hagsmunaaðila og rannsóknariðnaðinn. Það gefur okkur tækifæri til þess að kynnast því sem hægt er að nýta og aukin tækifæri til þess að fá sprotafyrirtæki í þessum geira hingað til bæjarins. Það er von okkar að bærinn nái að marka sér þá stöðu að þegar fólk hugsar um sjávarútveg og jarðvarma sé Grindavík það fyrsta sem þeim dettur í hug," segir Guðmundur Pálsson, formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar. Í tilkynningunni segir að á síðasta ári hafi verið stofnað til formlegs samstarfs innan jarðvarmageirans á Íslandi og jafnframt gefin út skýrslan Virðisauki í jarðvarma sem fjallar um greiningu og samstarfsmótun íslenska jarðvarma-klasans. „Höfundar skýrslunnar eru Hákon Gunnarsson og Þóra Margrét Þorgeirsdóttir hjá Gekon en prófessor Michael Porter og samstarsfmaður hans dr. Christian Ketels rita formála. Skýrslan byggir m.a. á kortlagningu klasans sem kynnt var á ráðstefnunni Iceland Geothermal 2010 þar sem dr. Porter var aðalræðumaður en hann er mikill áhugamaður um íslenskan jarðvarma."
Mest lesið Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira