Seðlabanki Kanada tilbúinn í formlegar viðræður við Íslendinga 2. mars 2012 06:47
Alan Bones sendiherra Kanada á Íslandi segir að Seðlabanki Kanada sé tilbúinn í formlegar viðræður um að Ísland taki upp Kanadadollar sem gjaldmiðil verði farið fram á slíkt. Sendiherrann mun ávarpa ráðstefnu á vegum Framsóknarfélags Reykjavíkur á morgun, laugardag, sem ber yfirskriftina "Er annar gjaldmiðill lausnin? Bones segir í samtali við Fréttastofu að hann hafi haft samband við Seðlabanka Kanada og látið bankann vita af þessum vangaveltum sem verið hafa hérlendis um upptöku dollarans. Þetta hafi Bones gert í framhaldi af því að hópur íslenskra viðskiptamanna bað hann um að kanna hvernig viðtökur slík málaleitan myndi fá í Kanada. Bones segir að Seðlabanki Kanada myndi líta það jákvæðum augum ef beiðni kæmi frá Íslandi um upptöku Kanadadollars og að bankinn sé tilbúinn til formlegra viðræðna um slíkt. Aðspurður um hvort það sé raunhæft fyrir Íslendinga að taka upp Kanadadollarann segir Bones að það sé spurning sem Íslendingar þurfi að svara en ekki hann. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins mun einnig ávarpa ráðstefnuna. Hann segir að það væri afar óábyrgt að kanna ekki alla möguleika í gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar hvað sem líði umsókninni um aðild að Evrópusambandinu. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel í fyrramálið og hefst kl. 10.30. Hún er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Fleiri fréttir Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Sjá meira