Viðskipti innlent

Mikil uppsveifla á fasteignarmarkaðinum

Mikil uppsveifla varð á fasteignamarkaðinum í síðustu viku. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni var 118. Til samanburðar hefur 84 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku undanfarna þrá mánuði.

Af þessum 118 samningum voru 92 samningar um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

Heildarveltan var rúmlega 4 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 34,1 milljón króna. Meðalveltan á viku undanfarna 3 mánuði er 2,6 milljarðar króna og meðalupphæð á samning tæplega 31 milljón kr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×