Viðskipti innlent

Dagur 2 í Landsdómsmálinu - 271 Twitter færsla

Magnús Halldórsson skrifar
Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra sést hér ganga inn í salinn í Þjóðmenningarhúsinu, á meðan Björgvin G. Sigurðsson bíður þess að bera vitni. Mynd/GVA
Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra sést hér ganga inn í salinn í Þjóðmenningarhúsinu, á meðan Björgvin G. Sigurðsson bíður þess að bera vitni. Mynd/GVA
Öðrum degi Landsdómsmálsins lauk rétt fyrir klukkan 18:00 í dag. Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður stjórnar Seðlabanka Íslands og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, hafði þá gefið skýrslu í tæplega fjóra tíma, en á undan honum höfðu Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, og Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og fyrrverandi aðalhagfræðingur seðlabankans, gefið skýrslu.

Þinghald hefst klukkan 09:00 í fyrramálið þegar Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi stjórnarmaður Seðlabanka Íslands gefur símaskýrslu. Á eftir honum koma svo Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Bolli Þór Bollason, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, Áslaug Árnadóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, og Jón Þór Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjórnar Seðlabanka Íslands.

Sjá má færslur með beinni lýsingu úr dómsal í dag, hér að neðan. Nýjasta færslan er efst.

Sjá má umfjöllun um fyrsta dag Landsdómsmálsins hér.

Bein lýsing Landsdómsmáls - Dagur 2.

Þinghaldi er nú lokið, og hefst það aftur klukkan 09:00 í fyrramálið, þegar Ingimundur Friðriksson gefur skýrslu.

3h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var oft þannig að dagskrá ríkisstjórnarfunda var önnur en raunin var, ef menn vildu ekki að fjölmiðlar ræddu málin.

3h Vísir ‏ @visir_is

Andri spyr um síðasta ákæruliðinn, er varðar fundargerðir og verklag hjá ríkisstjórnum. sakal.is/media/skjol/Ak…

3h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Menn gerðu sér vonir um að það væri hægt koma Iceave inn í dótturfélag, en ég var vonlítill að eignir væru til staðar á móti skuldum.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Menn bundu vonir við það, að það væri hægt að leysa þennan vanda, fram að bréfi í ágúst 2008. Þá voru komnar upp óraunhæfar kröfur.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Hlutirnir gerðust hratt, og þetta varð ógnarstórt á skömmum tíma.

4h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Var ekki leitað eftir neinum gögnum og upplýsingum um lausafjárstýringu til landsins í gegum innlánssöfnun erlendis?

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð:"Þessir bankamen buðu manni ekki góðan daginn fyrir minna en fimm milljarða"

4h Vísir ‏ @visir_is

Andri spyr um innlánssöfnunina og hvort seðlabankinn hafi gert eitthvað til þess að sporna við þessu.

4h Vísir ‏ @visir_is

Andri Árnason spyr vegna ákærliðar 1,5. sakal.is/media/skjol/Ak…

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Bankarnir fór úr hófi fram í innlánasöfnun, og það gerði Icesave-vandann meira íþyngjandi og erfiðari.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Mín afstaða var alveg skýr, og tel mig vita að ákærði hafi verið sama sinnis. Það var engin ríkisábyrgð á Icesave.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Mín afstaða til Icesave var alltaf skýr, Landsbankamenn höfðu enga heimild til þess að setja "ríkið á hausinn".

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Eignir Landsbankans voru ekki nægilega burðugar, gátu ekki uppfyllt skilyrði breska fjármálaeftirlitsins.

4h Vísir ‏ @visir_is

Eggert Óskarsson dómari spyr, hvort seðlabankinn hafi gert eitthvað til þess að flytja Icesave í dótturfélag.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ekki beint, og formlega, en ég lá aldrei á þeirri skoðun minni og alls ekki við FME.

4h Vísir ‏ @visir_is

Brynhildur Flóventz dómari spurði Davíð hvort hann hafi komið því til skila við ráðherra að hann teldi FME "mjög veikt".

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Þessi viðskipti voru afar illa séð, og fékk ég þau skilaboð margoft.

4h Vísir ‏ @visir_is

Þ.e. veðlánaviðskiptum við evrópska seðlabankann. Markús spurði hvort vitneskja um þetta hafi ekki verið fyrir hendi, þ.e. þessi viðskipti?

4h Vísir ‏ @visir_is

Markús spyr, og vitnar til punkta í fundargerð stjórnar seðlabankans, þar sem veðlánaviðskiptum íslensku bankanna er lýst.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: En vandinn var of mikill og bankarnir ekki þess burðugir að geta lifað af.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég átti í "endalausum samtölum" við Timothy Geithner, nú fjármálaráðherra Bandaríkjanna, um hvað væri hægt að gera.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég held að það hafi verið mjög erfitt, og erfitt að segja nákvæmlega hvenær það varð vonlaust.

4h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Var einhver möguleiki á því að minnka bankakerfið á árinu 2008?

4h Vísir ‏ @visir_is

Andri Árnason spyr um ákærulið 1,4. sakal.is/media/skjol/Ak…#landsdomur

4h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Strauss-Kahn var framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrssjóðsins árið 2008.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég hringdi í Strauss-Kahn og óskaði eftir "second opinion" á mögulegum aðgerðum til að minnka bankakerfið. Sendi samdægurs fólk.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: ..(frh) Þetta er bull. Það var illmögulegt að minnka bankakerfið en engri aðstoð var neitað.

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Í Speglinum og víðar er fjallað um það sem "meiriháttar vitleysu" að hafa afþakkað einhverja aðstoð við að minnka bankakerfið...

4h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðarkona Geirs í hruninu og náinn vinur hans, situr aftast í salnum og prjónar. Söguleg flík að verða til?

4h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var rætt um það, að FIH gæti hugsanlega orðið höfuðstöðvabanki Kaupþings. En sú leið var ekki fær. Traustið var farið.

4h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Geir skrifar niður punkta, látlaust, horfir varla upp frá blaði sínu. Hefur haft þann háttinn á í allan dag.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var allt í smáum stíl, fækkun á starfsfólki og þess háttar, og þetta var gert eftir hvatningu frá stjórnvöldum.#landsdomur

5h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús: Var gripið til einhverra aðgerða sem máli skiptu við, að minnka bankakerfð, að hálfu stjórnvalda? #landsdomur

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Mitt mat er það að ekki hafi verið mögulegt að flytja bankanna úr landi,vegna þess að erlend fjármálaeftirlit hefðu séð vandamálin.

5h Vísir ‏ @visir_is

Ákæruliðurinn snýr að því, að ekki hafi með virkum aðgerðum verið gripið aðgerða til þess að minnka bankakerfið.

5h Vísir ‏ @visir_is

Þá er það ákæruliður 1,4, Helgi Magnús saksóknari spyr.sakal.is/media/skjol/Ak…

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Fékk þau skilaboð á fundi í Basel að innlánasöfnun íslensku bankanna væri að "ógna" innlánastarfemi í allri Evrópu.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: "Þetta voru snjallir menn" þeir höfðu komið sér upp lánafyrirgreiðslu í ervrópska seðlabankanum sem var meiri en hjá mörgum löndum.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég er ekki með nokkru móti að segja "verjandi góður" að forsætisráðherra hafi getað gripið til einhverra aðgerða til bjarga málum.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Við komum okkar áhyggjum áfram, alveg skýrt, milliliðalaust, til ráðherra og stjórnvalda. Gátum ekki sett hvað sem er í skýrslur.

5h Vísir ‏ @visir_is

Andri heldur áfram að sauma að Davíð. Var seðlabankinn ekki að gefa það skyn í skýrslum 2008 að allt væri í lagi? Leiftrandi málflutningur.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég er þeirrar skoðunar að það hafi verið fullkomlega ómögulegt að bjarga bönkunum í byrjun árs 2008. Ég veit það núna.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Mér dettur ekki í hug að saka hinn ákærða um eitt eða neitt, en að hefði verið hægt að bregðast við.

5h Vísir ‏ @visir_is

Andri: En hefði seðlabankinn, með sín stjórntæki, ekki frekar átt að bregðast við frekar en stjórnvöld?

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég leit á það sem skyldu mína að koma upplýsingum af fundum mínum í Bretlandi, í byrjun árs 2008, beint til ráðherra?

5h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Andri hefur skotið beittum spurningum að Davíð. Af hverju sá seðlabankinn ekki að eigið fé bankanna var "froða"? spyr Andri.

5h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Hér er nú rafmagnað andrúmsloft. Davíð lýsir pirringi sínum í garð FME, vegna grunsemda um að eigið fé bankanna hafi verið falskt.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var pirringur af minni hálfu í garð FME. Ragnar Haflðason, aðstoðarforstjóri sagði FME byggja allt sitt á reikningum bankanna.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Við í seðlabankanum töldum FME vera "mjög veikt".

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Seðlabankinn hefur ekkert boðvald yfir FME, þrátt fyrir þennan samning.

5h Vísir ‏ @visir_is

Andri: En af hverju er seðlabankinn ekki að afla upplýsinga um þetta, á grundvelli samnings við FME (grípur frammi fyrir Davíð)?

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það kemur í ljós, þegar Stefán Svavarsson endurskoðandi, skoðar bækur Glitnis, að skilgreining á tengdum aðilum var mjög bjöguð.

5h Vísir ‏ @visir_is

...Davíð: (frh) það væri ekki "vandræðalegt fyrir Þóru". Konu Björgólfs Guðmundssonar.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Þegar ég fékk upplýsingar um að Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor teldust ekki tengdir aðilar, þá spurði ég hvort...(frh)

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það kom á daginn, eftir fall Glitnis að viðmiðun FME um tengda aðila var orðin mjög sveigjanleik, svo ekki sé meira sagt.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það voru settar fram spurningar til FME um það hvernig krosslánveitingum væri háttað. FME fullyrti að allt væri í lagi.

5h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Var ekki fyrir hendi samstarfssamningur milli seðlabankans og FME um eftirlit með ýmsum þáttum?

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Hann kom algjörlega "af fjöllum" þegar bankarnir féllu.

5h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég man aldrei eftir því að Arnór Sighvatsson hafi fjallað um vandamál bankanna, ekki mín eyru.

5h Vísir ‏ @visir_is

Andri Árnason spyr nú Davíð Oddsson.

6h Vísir ‏ @visir_is

Vitnaleðslur yfir Davíð halda áfram eftir hlé.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð sagðist mest hafa verið í sambandi við Jóhönnu Sigurðardóttur og Ingibjörgu Sólrúnu, af ráðherrum Samfylkingarinnar.

6h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Eiríkur Stefánsson, sem oft fer mikinn á Útvarpi Sögu, er mættur í salinn og er að leggja mönnum línurnar sem sitja við hlið hans.

6h Vísir ‏ @visir_is

Réttarhlé í fimmtán mínútur.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég átti einn fund með viðskiptaráðherra, en var ekki var við það að leitað væri þaðan eftir viðhorfum.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ingibjörg Sólrún lagði til að bönkunum yrði bjargað með því að útvega 30 til 40 milljarða evra. Það hefði verið "dauði" fyrir ríkið.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var tekin sú ákvörðun að fara ekki þá leið sem "síðar hefur verið farin" í Grikklandi og víðar, að taka ábyrgð á onýtum bönkum.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég sagði frá því á ríkisstjórnarfundi, byrjun október, að allir bankarnir yrðu fallnir innan viku.

6h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús: Var viðlagaáætlun samráðshópsins tilbúin þegar hrunið varð? Davíð: Okkar eigin viðlagaátlun var tilbúin.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Seðlabankinn lýsti því aldrei yfir "hvergi" að bönkum yrði bjargað.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Fannst sem vinna samráðshópsins mætti vera markvissari, en seðlabankinn hefði getað haft meiri áhrif á gang mála, mögulega.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Samráðshópurinn átti meðal annars að vinna að forvarnarvinnu fyrir lagasmíð "sem ekki mætti vera uppi á borðum".

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Við litum svo á að að þetta væri mikilvægur vettvangur fyrir skoðanaskipti, en það má þó ekki ofmeta starfshópa sem þessa.

6h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús spyr um samráðshóp stjórnvalda um fjármálastöðugleika, og hvernig aðkoma seðlabankans var að honum.

6h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Geir hefur handskrifað látlaust, það sem Davíð segir. Andri Árnason fylgist einnig einbeittur með, og punktar hjá sér.#landsdomur

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var ljóst, að þegar illa gekk hjá Glitni að afla lánsfjár í Bandaríkjunum, í byrjun 2008, að vandamálin voru að dýpka.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var hins vegar ljóst að bankarnir voru mjög háðir umhverfinu á alþjóðlegum mörkuðum og það brugðið til beggja vona#landsdomur

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Á þessum tíma var hins vegar ekki komin alþjóðleg "krísa" og bönkunum tókst að lengja í lánum sínum að einhverju leyti.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Þessir "ágætu" bankastjórar virtust trúa því að þeir myndu fara í þrot (um fundinn heima hjá Davíð 26. mars 2006).

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: "Ég gerði það kannski ekki nógu oft." Kom áhyggjum ítrekað áfram.

6h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús: Töluðu þið ákærði oft saman um þessi mál í aðdraganda hruns bankanna?

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ég leit á það sem mína skyldu að segja frá mínum áhyggjum, við forsætisráðherra, berum orðum. #landsdomur

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Þeir sem kunnu að lesa í skýrslur seðlabankans, sáu augljós merki um "þá svörtu sýn" sem seðlabankinn hafði á bankanna.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Fyrirgreiðsla seðlabankans hér á landi, tók að nokkru leyti mið af þessu.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Á fundum Í Basel, "þar sem talað er frjálslega, því það fer ekki lengra" þá voru menn á því að endurreisa traust með lausu fé.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var nær útilokað að þetta gæti gengið, þ.e. að bankarnir næðu að endurfjármagna sig.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það var ljóst að bankarnir þurftu að útvega sér 45 milljarða evra á nokkrum árum, og það voru gríðarlegir fjármunir.

6h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Menn höfðu viðvarandi áhyggjur af stöðu Glitnis, og allra bankanna raunar, á árinu 2008.

6h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús spyr út í gögn frá janúar 2008, sem segja að Glitnir hafi ekki laust fé til næstu þriggja mánaða.

6h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Geir heldur sig við að skrifa hjá sér það, sem Davíð er að segja. Hann heldur ítarlega sjálfstæða punkta um það sem hér fer fram.

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Forsvarsmenn seðlabanka geta ekki sagt hvað sem er út á við, þeir þurfa að passa sig, en ég kom mínum áhyggjum á framfæri.

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Það voru ekki allir sammála þessu mati mínu, á veikum innviðum bankanna, innan Seðlabanka Íslands.

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: "Menn héldu að þeir gætu keypt hvað sem var, hvað sem það kostaði," sagði Davíð um stærstu eigendur bankanna.

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Ólíkt því sem margir halda, þá vorum við í stjórn Seðlabanka Íslands með jafnmikil völd, og við tókum ákvarðanir saman.

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Mínar athugasemdir vegna veikrar stöðu bankanna, komu fram miklu fyrr en árið 2008.

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Uppkaup manna sem tengdust bönkunum á fyrirtækjum í Danmörku, Bretlandi og víðar, blindaði mönnum sýn. #landsdomur

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð:Menn reiddu sig á ársreikninga um bankanna, sem undirritaðir voru af stjórnendum bankanna of stærstu endurskoðendaskrifstofum landsins

7h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús: Gerðir þú þér grein fyrir því að eignasöfn bankanna væru veikburða, eins og fram hefur komið hér fyrir domi?

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð: Um margra ára skeið gátu bankar nálgast lánsfé á "ótrúlegum" kjörum. Um mitt ár 2007 lauk þessu ástandi snögglega. #landsdomur

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð Oddsson: Bankarnir fóru djarflega og voru komnir á ystu nöf, þegar alþjóðamarkaðir svo gott sem lokuðust.

7h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús: Hver var meginástæða þess að bankarnir féllu?

7h Vísir ‏ @visir_is

Helgi Magnús Gunnarsson spyr Davíð Oddsson, hann byrjar á því að endurtaka ákæruefnið. sakal.is/media/skjol/Ak…

7h Vísir ‏ @visir_is

Davíð Oddsson er kominn í sæti til að gefa skýrslu. Hann hefur áhrifamikla nærveru, nú sem fyrr. Ljósadýrð flassins fylgdi honum inn í sal.

7h Vísir ‏ @visir_is

Næstur er Davíð Oddsson,fyrrverandi formaður stjórnar Seðlabanka Íslands og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór Sighvatsson hefur lokið skýrslugjöf.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Líklega breytti það þó engu um hvernig fór að lokum, hver "var í brúnni". Bankarnir hefðu aldrei getað lifað af.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Davíð Oddsson er umdeildur maður og það hafði áhrif á umræðu um aðgerðir í tengslum við aðkomu seðlabankans að Glitni.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Ég kom að ákveðnum kafla um þjóðhagslega þætti í skýrslunni en öðru ekki.

7h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Í skýrslunni segir að staða fjármálakerfisinshafi verið traust. Hvernig stendur á þessu?

7h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Rit Seðlabankans um fjármálastöðugleika, frá því í maí 2008, gaf nú ekki tilefni þess að staðan hafi verið virkilega slæm?

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Bankarnir hefðu þurft að selja allar bestu eignir sínar, og þá hefði fyrst og fremst verið eftir bólueignir sem ekkert hald var í.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Ég tel það nánast "fráleitt" að það hafi verið hægt að selja eignir bankanna og minnka efnahag þeirra, svo það gerði eitthvað gagn.

7h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Telur þú að það hafi verið hægt að selja eignir bankanna á árinu 2008?

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Minnistæður er fundur með Barclays banka árið 2005, en þá komu fram efasemdir um að það væri innistæða fyrir vexti bankanna.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Traust á banka er lítils virði ef það er ekki innistæða fyrir því. Ég tel sjálfur að eigið fé bankanna hafi verið falskt.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Það skýrist ekki almennilega fyrr en eftir á, hvað gæði eigna bankanna voru slæm. #landsdomur

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: "Þarna var dauðvona krabbameinssjúklingur að fá hjartaáfall" sagði Arnór um fall bankanna. #landsdomur

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Lausafjár vandi er eins og hjartaáfall en eiginfjárvandi eins og krabbamein fyrir banka.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Menn gerðu sér ekki grein fyrir því hvað eignirnar voru veikar hjá bönkunum. #landsdomur

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Ég gerði það margoft, einkum innan seðlabankans. Sérstaklega voru það áhyggjur af gæðum eigna sem vöxturinn byggði á.

7h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Komst þú einhverju á framfæri um það að bankarnir væru að taka of mikla áhættu?

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór skýrir það, aðalhagfræðingur, framkvæmdastjóri hagfræðisviðs sem kom að vinnu við fjármálastöðugleikaskýrslum bankans.

7h Vísir ‏ @visir_is

Andri Árnason spyr. Fyrst, hvert var þitt helsta starfssvið innan Seðlabanka Íslands? #landsdomur

7h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Spyr um bréfaskipti milli Davíðs Oddssonar og Mervyn King, bankastjóra Seðlabanka Bretlands. Arnór vissi ekki af þeim.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Ég held að það hefði verið mjög erfitt að færa Icesave yfir í dótturfélag, þar sem það hefði þurft að færa eignir á móti skuldunum.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Einn lærdómurin af þessu öllu saman, er að gengisáhætta milli eigna og skulda sé ekki eins mikil og hér var.

7h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Ég vissi um það eftir að innlánssöfnunin hófst, en þetta var fyrst og fremst mál FME. #landsdomur

7h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður spyr um stofnun Icesave reikningana í Hollandi í mars 2008. Vissir þú eitthvað um þetta Arnór?

7h Vísir ‏ @visir_is

...Arnór: (frh) en er starfrækslumyntin í höfuðstöðvalandinu.

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór:Lærdómurinn af þessari eignabólu, er kannski sá að það er mjög varhugavert að eigna- og skuldahlið banka sé í öðrum gjaldmiðli en..frh

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Enginn gat búist við því sem síðar kom í ljós, að bankarnir væru að "kaupa eigin hlutabréf". #landsdomur

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Að sjálfsögðu var þetta rætt, og um þetta fjallað í ritum bankans, út á við og inn á við.

8h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Var var verið að ræða um þau hættumerki sem fylgja hröðum vexti banka, eins og þú lýsir þessu? #landsdomur

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Hröðum vexti banka fylgir alltaf áhætta, þar sem reynslusaga eignanna sem vöxturinn byggir á er stutt og óvissan því mikil.

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Árið 2006 var engin "míníkrísa" heldur alvarlegur vandi þar sem "líf bankanna var í húfi". #landsdomur

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Núna, eftir að eignahlið bankanna liggur fyrir, var undirliggjandi eiginfjárvandi mun djúpstæðari en talið var.#landsdomur

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór: Þegar horft er um öxl, eru rætur hruns mun aftar en margir vilja meina. Þegar á árinu 2005 voru skýr merki um að vandi væri framundan

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór svarar spurningum er varða ákæruliðina 1,3 og 1,5, öðru fremur, skv.uppleggi saksóknara. sakal.is/media/skjol/Ak…

8h Vísir ‏ @visir_is

"Þinghaldi er þá framhaldið" segir Markús Sigurbjörnsson.#landsdomur

8h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Hér er nú troðfullur salur, og Arnór Sighvatsson bíður þess að setjast í vitnastúkuna. #landsdomur

8h Andri Valur Ivarsson ‏ @andrivalur

Aðeins einn dómari í Landsdómi tekur þátt í mottumars. Það er formaðurinn Markús Sigurbjörnsson #landsdomur #mottumars

Retweeted by Vísir

8h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Hannes Hólmsteinn Gissurarson er mættur í salinn. Hann er yfirleitt ekki langt undan ef Davíð Oddsson er annars vegar.

8h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður Friðjónsdóttir er sest á sinn stað, og bíður þess að málið hefjist að nýju. Ljósmyndarar eru allt um kring. #landsdomur

8h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Hér nokkuð þéttsetið, margir laganemar að fylgjast með þessu einstaka dómsmáli. #landsdomur

8h Vísir ‏ @visir_is

Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri er mættur og bíður þess að bera vitni. Hann var aðalhagfræðingur seðlabankans fyrir hrun.

8h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Blaðamennirnir Björn Vignir Sigurpálsson og Árni Þórarinsson eru mættir í salinn. Þeir voru samstarfsmenn á Morgunblaðinu um árabil.

8h Vísir ‏ @visir_is

Hér í Þjóðmenningarhúsinu er fjöldi fólks, sem sameinast í ágætri kaffisölu á jarðhæðinni. Gósentíð hjá kaupmanninum sem rekur eldhúsið!

9h Vísir ‏ @visir_is

Hlé hefur nú verið gert á þinghaldi til 13:30. Þá kemur Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri.

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Marg sinnis var rætt um gjaldeyrisvaraforðann allt árið 2008, sem tengdist vitanlega erfiðleikum fjármálakerfisins.

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Það er margt sem ekki er skráð formlega, sem samt er rætt á ríkisstjórnarfundum. "Mjög margt" sagt með áherslu.

9h Vísir ‏ @visir_is

Andri spyr um bókanir og dagskrártillögur á ríkisstjórnarfundum, í tengslum við síðasta ákæruliðinn. sakal.is/media/skjol/Ak…

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Ég ræddi þetta við forsætisráðherra hispurslaust, en síðan héldum við okkar samstarfi áfram. Þetta gerðist snöggt.

9h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Spyr hvers vegna Björgvin var ósáttur við að hafa verið haldið frá ákvörðunum um Glitnis-helgina?

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Það var margsinnis rætt um stöðu efnahagsmála og bankanna á árinu 2008.

9h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Kjartan Gunnarsson, f. framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, var að ganga í salinn. Hann var varaformaður bankaráðs landsbankans

9h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður er nú að spyrja Björgvin út í síðasta lið ákærunnar, sem snýr að utanumhaldi um fundi og fundargerðir. sakal.is/media/skjol/Ak…

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin:Allt voru þetta tímafrekar aðgerðir og það var erfitt að framkvæma þetta, alveg eins og selja eignir. Menn reyndu, en það gekk ekki

9h Vísir ‏ @visir_is

Benedikt Bogason dómari spyr: Hvað með þann möguleika að minnka bankakerfið með því að flytja höfuðstöðvar úr landi?

9h Vísir ‏ @visir_is

Moli:Það verður óneitanlega söguleg staða hér á eftir. Þegar ritstjóri Morgunblaðsins ber vitni, og blaðamenn blaðsins fylgjast með.

9h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Halldór Blöndal, fyrrverandi ráðherra, var að koma í hús. Pétur sonur hans er hér líka, sem blaðamaður Morgunblaðsins.#landsdomur

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Já, það var skýr afstöðu breyting, og það komu fram óraunhæfar kröfur. Líklega vegna taugaveiklunar í Bretlandi.

9h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Kom afstaða breska fjármálaeftirlitsins, í bréfi í ágúst 2008, vegna Icesave mönnum á óvart? #landsdomur

9h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Sigríður Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari og tók við því starfi af Valtý Sigurðssyni þegar hann hætti.

9h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Andri Árnason útskrifaðist frá Lagadeild HÍ 1982, hrl. síðan 1993 og er með Postgraduate próf frá Kings College í London frá 2004

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Það voru uppi áform um að flytja eignir á móti skuldum í áföngum, en það var uppi ágreiningur um þær kröfur. Þær voru óraunhæfar.

9h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Vissir þú eitthvað um hversu langan tíma gæti tekið að flytja Icesave inn í dótturfélag?

9h Vísir ‏ @visir_is

...Björgvin: án miðlægs eftirlits á hinu sameiginlega markaðssvæði. Þetta sást best þegar kom að innstæðutryggingum

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Kerfisvillan er augljós. Bankar með höfuðstöðvar í 300 þúsund manna landi, störfuðu á 500 milljóna manna markaði...

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Íslensk stjórnvöld tóku Icesave-vandann mjög alvarlega, af því að hann ógnaði stöðugleika á viðkvæmum tímum.

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Ég veit ekki hvernig "í veröldinni" Darling datt í hug að 300 þúsund manna þjóð ætti að taka á sig mörg hundruð milljarða skuldir.

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Kröfur breska fjármálaeftirlitsins voru óraunhæfar, og hefðu alltaf valdið hruni Landsbankans. Það var ekki hægta framkvæma þær.

9h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður spyr út í hvaða aðgerðir hafi komið til greina, þegar kemur að færslu á Icesave yfir í dótturfélag.

9h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Það fjölgar í salnum. Elín Hirst var að ganga inn. Hún lætur þetta ekki alveg framhjá sér fara, enda forvitinn blaðmaður.

9h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Kröfur breska fjármálaeftirlitsins um flutning á eignum, til að mæta innánsskuldum Icesave,voru fullkomlega óraunhæfar.

9h Vísir ‏ @visir_is

Moli:Björgvin hefur gefið út bók um bankahrunð sem Karl Th Birgisson skráði með honum. Hún heitir Stormurinn. Björgvin heur vísað til hennar

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður:Varstu upplýstur í apríl 2008 um miklar úttökur af Icesave reikningum Landsbankans, og þann vanda sem það skapaði?#landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin:Ég minnist þeirra ekki sérstaklega, heldur þess frekar að rætt hafi verið um að almenna slæma stöðu á mörkuðum, "botnfrosið" ástand

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Spyr út í upplýsingar sem bárust frá seðlabankanum í febrúar 2008, um að fjármálakerfið stæði illa. #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Samstarf mitt við fyrrverandi forsætisráðherra var ákaflega gott,hann var aðgengilegur og við ræddum málin ítarlega þegar þurfti.

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Þegar það berst bréf í ágúst 2008, þá er því svarað af ábyrgð. Hann gerði eflaust það sem hann átti að gera, og eftir atvikum gat.

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Heldur þú að forsætisráðherra hafi gert eitthvað til þess að stuðla að því að Iceave í Bretlandi yrði fært í dótturfélag?

10h Vísir ‏ @visir_is

Spurningar vegna ákæruliðar 1,5 eru nú í gangi. Hann varðar flutning á Icesave yfir í dótturfélag. Sjá hér sakal.is/media/skjol/Ak…

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Ég gerði það um Glitnis-helgina, eins og komið hefur fram, og þá gagnvart forsætisráðherra (GHH) og utanríkisráðherra (ISG).

10h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Kallaðir þú eftir því að vera upplýstur um ganga mála frekar?

10h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Í Landsdómi sitja fimmtán dómarar, fimm konur og tíu karlar. Markús Sigurbjörnsson er forseti réttarins. #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Moli:Ragnheiður Elín Árnadóttir er eini þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur setið hér í dag og í gær. Hún var aðstoðakona Geirs um tíma

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Eftirlitið með innviðum bankakerfisins var á hendi FME og Seðlabankans. Ég mátti ekki, skv. lögum, hafa afskipti af því.

10h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Geir hefur varla horft upp úr frá borði sínu, skrifar mikið hjá sér á meðan Björgvin svarar spurningum Andra. Er einbeittur.

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Ég taldi að aðild að stærra myntsvæði myndi leysa þann vanda, en það var augljos kerfisbrestur í regluverki ESB. Bankar of stórir.

10h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Hlutfallsvandi fjármálakerfisins, hvað fannst þér um hann og hvað var hægt að gera?

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin segist ekki hafa vitað um það þegar sú stafsemi hófst, enda hafi FME séð um það og hann hafi ekki mátt skipta sér af því skv.lögum

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður spyr um Icesave, og hvort Björgvin hafi vitað um innlánssöfnunina í Hollandi sem hófst í mars 2008.

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin segist ekkert hafa vitað um bréfið, en allir hafi gert sér grein fyrir því að bankakerfið væri of stórt.

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður vitnar til bréfs frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum frá 2007 til Seðlabankans, þar sem segir að minnka þurfi bankakerfið.

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Ég vissi um gjaldmiðlaskiptasamninginn sem slík, en sá ekki efnisatriði samningsins sem slíks fyrr en síðar. #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Hvað vissir þú um gjaldmiðlaskiptasamning við seðlabanka Norðurlandanna frá maí mánuði 2008? #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Það höfðu allir áhyggjur af því hversu hratt aðstæður breyttust á árinu 2008. Við reyndum að vera vel undbúin.

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Nei, heldur að styðja við þá stefnu, að íslensk fyrirtæki gætu starfað hér á landi. Bankarnir minnkuðu frá árinu 2006.

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Var það ekki stefna ríkisstjórnarinnar að styðja við áframhaldandi vöxt bankakerfisins? #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Bankarnir reyndu allt, til þess laga stöðu sína, með eignasölu og ýmsu fleiru. Það gekk einfaldlega ekki upp.#landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Sturla Jónsson var að mæta í hús, á svipuðum tíma og í gær. Greinlega upptekinn bítið. #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Bankarnir sjálfir vildu selja eignir, en þeir gátu það ekki, því það hefði tafarlaust fellt þá. #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Ég fékk upplýsingar um málið eins og aðrir frá samráðshópnum. Það var ekki hægt að gera neitt til þess að minnka bankakerfið.

10h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Í skýrslutökum fyrir RNA, kemur fram þér hafi verið haldið fyrir utan aðgerðir vegna þess að þú varst álitin "lausmáll".

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Það kallaði ekkert á inngrip í vinnu samráðshópsins af minni hálfu. #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Menn skiptust á skoðunum, að því er ég best vissi og eðlilegt var. Gögn hópsins voru mikil trúnaðargögn sem farið ver með þannig.

10h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Voru deildar meiningar innan samráðshópsins um hvernig ætti að vinna það verk sem hann var að vinna? #landsdomur

10h Vísir ‏ @visir_is

Moli: Geir Haarde sjálfur skrifar mikið hjá sér, það sem Björgvin er að segja. Geir starfaði í mörg ár sem blaðamaður. Kannski nýtist það?

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Já, mér var kunnugt um hann, og vissi að hann nýttist vel fram eftir öllu ári 2008. #landsdomur

11h Vísir ‏ @visir_is

Andri: Var þér kunnugt um samstarfssamning FME og Seðlabanka Íslands?

11h Vísir ‏ @visir_is

Andri Árnason spyr nú Björgvin, út í vinnu stjórnvalda á árinu 2008.

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Þetta snérist um stöðumat á hverjum tíma, hverri stund. Samráðshópurinn markaði grunninn fyrir neyðarlögin. #landsdomur

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Var til áætlun um hvað ætti að gera ef einn banki færi á hliðina og hvaða áhrif það kynni að hafa á aðra?

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Í ágúst 2008, fundaði samráðshópurin. Var þá til viðbúnaðaráætlun á vegum stjórnvalda? #landsdomur

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Allt árið 2008 hrönnuðust upp "óveðurský" á mörkuðum sem við fylgdumst vel með. #landsdomur

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Við þurftum ekki að fá gögnin sem slík, heldur var samráðshópurinn sjálfur starfandi á vegum stjórnvalda, og markaði grunninn.

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: En þú vissir ekkert um vinnu samráðshópsins, fékkst engin gögn afhent. Sýnir þetta ekki að stjórnvöld voru ekki viðbúin?

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Þetta er ekki rétt. Stóra myndin er sú, að þegar á reyndi þá var mörkuð rétt pólitísk stefnumörkun, með neyðarlögunum?

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Það skorti á pólitíska stefnumörkun um hvað ætti að gera, að mati samráðshópsins. Vissir þú af þessari afstöðu hópsins?

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Ekki hægt að ákveða endanlega hvað ætti að gera fyrr en á síðustu stundu. "Enginn bjóst við eini verstu kreppu í veraldarsögunni."

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Minnstu skilaboð frá stjórnvöldum um að fjármálakerfið stæði á brauðfótum gat orsakað hrun þess, á viðkvæmum tímum.#landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: "Ég tel ekki hægt að svara því játandi". Starf hópsins var markvisst og vandað og skipti sköpum þegar á reyndi. #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Telur þú að starf samráðshópsins hafi mátt vera markvissara?

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Nei, en var upplýstur um gang mála munnlega reglulega og eftir því sem þörf var á. #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður: Fékkst aldrei nein gögn í hendur frá samráðshópnum um fjármálastöðugleika? #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Vinna samráðshópsins skipti sköpum fyrir það sem síðar gerðist, þ.e. fyrir neyðarlagasetninguna 6. október. #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Markús segir Björgvini að enblína á að svara því, hvað hann vissi um starf samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika.

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin segir vinnu samráðshóps stjórnvalda hafa verið ábyrga, þvert á það sem margir hafa haldið fram. #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Samráðshópurin vann mikið og gott starf sem skipti sköpum fyrir neyðarlagasetninguna, þegar að henni kom. #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður spyr Björgvin út í starf samráðshóps stjórnvalda um fjármálastöðugleika.

11h Vísir ‏ @visir_is

Björgvin: Enginn bjóst við hruni bankanna en staðan á mörkuðum var erfið frá júnímánuði 2007 og þyngdist stöðugt. #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Fyrirkomulagið er þetta: Sigríður saksóknari spyr fyrst, síðan verjandi Geirs og síðan Markús Sigurbjörnsson, forseti Landsdóms.#landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

"Þinghaldi er þá formlega fram haldið," segir Markús Sigurbjörnsson, forseti Landsdóms. Björgvin G. Sigurðsson gefur skýrslu.#landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Geir H. Haarde er sestur. Við hlið hans eru sem fyrr, Andri Árnason hrl og Hólmfríður B. Sigurðardóttir hdl. #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Hér er spennuþrungið andrúmsloft, enda vitnaleiðslur formlega að hefjast í dag. Björgvin G. Sigurðsson er genginn í salinn, í flassljóma.

11h Vísir ‏ @visir_is

Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari er mætt, ásamt föruneyti sínu. Sem samanstendur af Helga Magnúsi Gunnarssyni og aðstoðarmanni.#landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Fjórir ákæruliðir standa nú eftir í málinu, eftir að fyrstu tveimur liðunum var vísað frá. Sjá sakal.is/media/skjol/Ak… #landsdómur

11h Vísir ‏ @visir_is

Ljósmyndarar og myndatökumenn bíða þess að málsaðilar mæti á svæðið. Hljóð- og myndupptökur er bannaðar inn í dómsal þegar málið hefst.

12h Vísir ‏ @visir_is

Ég mætti fyrstur á svæðið í morgun, þá voru hljóðmenn að "sándtékka" í Landsdómi.

12h Vísir ‏ @visir_is

Skýrslutakan yfir Geir H. Haarde tók átta tíma í gær. Sjá má ákæruna hér en ákæruliðum 1,1 og 1,2 var vísa frá dómi.sakal.is/media/skjol/Ak…

12h Vísir ‏ @visir_is

Hér er töluvert af fólki sem ekki telst til aðstandenda Geirs eða fjölmiðlafólks. Háskólanemar og lögmenn, að fylgjast með gangi mála.

12h Vísir ‏ @visir_is

Dagur 2 í Landsdómsmálinu er að hefjast. Salurinn var að opna. Björgvin G. Sigurðsson, Arnór Sighvatsson, og Davíð Oddsson bera vitni í dag.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×