Árni Finnsson segir það ólöglegt að flytja inn sorp frá Bandaríkjunum 8. mars 2012 10:11 Sorpeyðingarstöðin Kalka. Mynd / Vilhelm
Innflutningur á erlendu sorpi og spilliefnum frá Bandaríkjunum er ólöglegur samkvæmt áliti Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, en hann sendi þingmönnum bréf þess eðlis í gær þar sem hann áréttar að slíkur innflutningur sé ólöglegur samkvæmt svokölluðum Basel-samningum, sem Bandaríkjamenn eru ekki búnir að fullgilda. Ástæðan fyrir því að Árni sendir þingmönnum þessa áréttingu er vegna þess að Reykjanesbær íhugar að selja sorpeyðingarstöðina Kölku til bandarísks félags sem hyggur á sorpinnflutning sem þeir stefna svo á að eyða hér á landi. Vísir greindi frá því í gær að þessi hugmynd er afar umdeild innan bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, þannig leggjast Samfylkingarmenn alfarið gegn hugmyndinni. Þannig sagði Friðjón Einarsson í viðtali við Víkurfréttir: „Þetta er ekki beint huggulegt að hugsa sér mengun frá stærri stöð yfir golfvöllinn í Leiru og annað nágrenni. Það er heldur ekki hægt að segja að þetta sé ferðaþjónustu til framdráttar, spúandi reykur allan sólarhringinn." Í tilkynningu frá Reykjanesbæ í lok febrúar segir að fyrirtækið ætli sér að brenna sorp og spilliefni frá dótturfélagi sínu í Kanada. Þess má geta að Kanada var eitt fyrsta landið sem fullgilti Basel samninginn. Það hefur gengið brösulega að selja sorpeyðingarstöðina. Þannig reyndi bæjarfélagið að ná samningum við erlenda fyrirtækið Waste Energy Management ehf. árið 2010. Það náðist þó ekki. Það var svo í lok febrúar sem bæjarfélagið lýsti því opinberlega að fyrirtækið Triumvirate Environmental hefði lýst sig reiðubúið til að greiða allt að 10 milljónum Bandaríkjadala, eða jafnvirði um 1.250 milljóna íslenskra króna, fyrir eignir Kölku. Þess má geta að skuldir Kölku nema 950 milljónir króna. Hægt er að lesa bréf Árna í heild sinni á vef Smugunnar.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira