Þriggja ára og berst við illkynja æxli Hugrún J. Halldórsdóttir skrifar 7. apríl 2012 18:38 „
Hún er harkan og fæst ekki til að liggja í rúminu" segir móðir Emmu Lindar Aðalsteinsdóttur þriggja ára stúlku sem berst nú við illkynja æxli. Frændi mæðgnanna heldur styrktartónleika í kvöld enda ekki annað hægt fyrir jafn æðislega frænku. Emma Lind greindist í byrjun marsmánaðar með illkynja æxli í grindarbotni og hefur á skömmum tíma gengið í gegnum þrjár lyfjameðferðir og verið svæfð í tvígang. „Þriðja lyfjameðferðin var sterkust en við fengum hana ekki einu sinni til að liggja í rúminu í þriðju meðferðinni hún vildi bara leika og vera á gólfinu. Hún er súpersterk. Er það l. fyrir hana. Það er hún algjörlega, hún er harkan gjörsamlega út í gegn," segir Anna Margrét, móðir Emmu Lindar. Og búist er við að þessi litla hetja verði í meðferðum þar til í lok maí. „Þá fer hún mjög líklega í aðgerð til að taka það sem eftir er og svo er eftirmeðferð." Foreldrar Emmu Lindar eru einungis 22 ára. Faðirinn hefur verið í fríi frá vinnu síðan hún greindist og Anna Margrét er í fæðingarorlofi en systir Emmu Lindar, Alba Sædís, er fimm mánaða. Þetta hlýtur að vera kostnaðarsamt? „Já, þetta er mikill aukakostnaður sem maður bjóst ekki við," svarar Anna Margrét. Frændi mæðgnanna ákvað þegar Emma Lind greindist að styrkja fjölskylduna og í kvöld heldur hann tónleika á Manhattan í Keflavík þar sem Kalli Bjarni Idolstjarna kemur fram. Aðgangseyrir er 1.500 kr og rennur hann óskiptur til Emmu Lindar og fjölskyldu hennar. „Ég bjó hérna heima hjá þeim um tíma og var rosalega mikið með Emmu inni í herbergi að leika. Þá ákvað ég því mér þykir svo vænt um hana að reyna að gera eitthvað gott. Þetta er æðisleg stelpa," segir Guðmundur Ingi Vésteinsson, frændi Emmu Lindar. Fyrir þá sem ekki komast á tónleikana en hafa áhuga á að styrkja Emmu Lind og fjölskyldu hennar geta millifært á reikning 515-14-407100, Kt.130908-2330. Anna Margrét segist finna fyrir miklum stuðningi. „Alveg hiklaust, ég trúði ekki að ég ætti þetta fólk að," segir Anna Margrét.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira