Gengisfall krónunnar hefur stöðvast 10. febrúar 2012 10:45
Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting verið á því það sem af er febrúar. Má því segja að í heild að gengi hennar hafi verið nokkuð stöðugt, og raunar hafa gengissveiflur krónu ekki verið jafn litlar á tveggja vikna tímabili og undanfarnar vikur síðan í kring um mánaðamótin nóvember/desember á síðasta ári. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þó hafi sú litla hreyfing sem hefur átt sér stað verið í jákvæða átt, þ.e. styrking upp á 0,4%, en gengi krónunnar veiktist um hátt í 2% í janúar. Eins og oftast er raunin hefur þróunin á gengi krónunnar gagnvart helstu viðskiptamyntum verið með nokkuð mismunandi hætti. Þannig hefur lítilsháttar veiking, eða sem nemur rúmum 0,2%, verið á gengi krónunnar gagnvart evrunni það sem af er febrúar og kostar evran nú rúmar 162 krónur á innlendum millibankamarkaði. Á hinn bóginn hefur Bandaríkjadollar lækkað nokkuð í verði og er nú á rúmar 122 krónur en var á hátt í 124 krónur í lok janúar. Nemur styrking krónunnar gagnvart dollar þar með um 1,3%. Einnig hefur breska pundið lækkað nokkuð í mánuðinum, og er nú á rúmar 193 krónur en kostaði í lok janúar 195 krónur. Nemur styrking krónunnar gagnvart pundinu þar með um 0,9%. Verður afar fróðlegt að sjá hvernig framhaldið verður, enda er gengi krónunnar áhrifamikill þáttur á efnahagslífið hér á landi og þá mun meira en gengur og gerist í flestum nágrannalöndum, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira