Verne Global samdi við Opin kerfi Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. febrúar 2012 14:31 Gunnar Guðjónsson er forstjóri Opinna kerfa. mynd/ GVA.
Alþjóðlega fyrirtækið Verne Global opnaði í síðustu viku eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ, sem kunnugt er. Fyrirtækið tilkynnti svo á fimmtudaginn að það hefur valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. „Samstarf með fremsta þjónustuaðila landsins mun gera okkur kleift að hámarka ávinning viðskiptavina okkar," segir Tate Cantrell, framkvæmdastjóri tæknisviðs Verne Global í tilkynningu. Samhliða þessum samningi mun Opin kerfi flytja hýsingarstarfsemi sína og innri kerfi í gagnaver Verne Global. „Með þessari samþættingu á starfsemi fyrirtækjanna er lagður grunnur að öflugu samstarfi sem mun styðja við okkur og viðskiptavini okkar," segir Tate jafnframt. Gunnar Guðjónsson forstjóri Opinna kerfa, segir að sé litið til menntunarstigs íslensks vinnuafls, fjölda fyrirtækja í upplýsingatæknitengdri starfsemi, gæði menntastofnana okkar og fjölda nemenda í tæknitengdum greinum, sé enginn vafi á að Ísland hafi alla burði til þess að mæta þörfum gagnaversiðnaðar. Framtíðin sé spennandi og krefjandi en íslenskt samfélag þurfi að aðlagast hratt og áherslur stjórnvalda og menntastofnana varðandi tæknitengt nám þurfi að skerpa og styðja enn betur. Verne Global er að þróa fyrsta gagnaver heims með jafnvægi í kolefnisútblæstri. "Með opnun gagnaversins er verið að mæta mikilli eftirspurn um hagkvæmni eignarhaldskostnaðar upplýsingatæknikerfa er byggir á vistvænni orku. Fjöldi erlendra fyrirtækja horfir til þess að nýta sér þetta einstaka hátækni gagnaver fyrir starfsemi sína. Opin kerfi er fyrirtæki með farsæla sögu, tryggan rekstur, einvala lið sérfræðinga og traust samband við erlenda birgja á borð við HP, Cisco, VM-Ware, Redhat og Microsoft. Þessir þættir og fleiri koma til með að tryggja viðskiptavinum Verne Global þá þjónustu og þann stuðning sem þeir þurfa til að ná árangri," segir Gunnar.
Mest lesið Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Neytendur Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki Warren Buffet: Raunverulegur árangur snýst um ástina Atvinnulíf Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta Samstarf Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Viðskipti erlent Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Viðskipti innlent Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Ekki hægt að leiðast í vinnunni Viðskipti innlent Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Fleiri fréttir Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Sjá meira
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki
Vestfirðir sækja í sig veðrið – átta ný fyrirtæki á lista þeirra Framúrskarandi Framúrskarandi fyrirtæki